Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Pílagrímsferð bræðra að bátsflaki í Bakkafjöru

Read Full Article →

Bræðurnir Ásmundur Karl, Elías Jörundur og Óskar Pétur Friðrikssynir úr Vestmannaeyjum létu loks verða af því um miðjan ágúst að heimsækja flakið af skipi föður þeirra sem legið hefur í Bakkafjöru frá árinu 1974. Óskar segir að það hafi verið vorið 1972 sem faðir hans, Friðrik Ásmundsson skipstjóri, hafi í félagi við Guðna Þorsteinsson vélstjóra og Jóhann Sigurðsson stýrimann keypt Sigurð Gísla VE 127 af dánarbúi Sigurðar Gísla Bjarnasonar í Svanhóli. Einn af mörgum Svíþjóðarbátum „Báturinn var byggður í Svíþjóð 1946, einn af mörgum svokölluðu Svíþjóðarbátum sem byggðir voru þar stuttu eftir síðari heimsstyrjöldina. Hann var um 100 tonn að stærð,“ segir Óskar. Sigurður Gísli VE hafi verið vertíðarbátur eins og það hafi verið kallað. Fyrst lína, þá net og síðan botntroll Sigurður Gísli VE 127 í Friðarhöfn í Vestmannaeyjum Mynd/Þórður Magnússon „Árið byrjaði oftast á að dregin var lína fram undir miðjan febrúar. Þá var línunni skipt og farið á net og voru bátarnir á netum fram að lokadegi sem var alltaf 11. maí. Eftir það var farið á botntroll og veitt þannig það sem eftir lifði árs,“ segir Óskar um verkefnin hjá áhöfnum vertíðarbáta á þessum tíma. Björguðu áhöfn annars báts „Yfirleitt sóttu trollbátarnir frá Vestmannaeyjum á hefðbundin mið út af Suðurlandi og við Vestmannaeyjar. Einnig á miðin út af Vík í Mýrdal, á Portlandið, og jafnvel alveg austur að Ingólfshöfða,“ heldur Óskar áfram. Að sögn Óskars gekk allt vel hjá útgerðarmönnunum á Sigurði Gísla. „Sennilega var stærsti atburðurinn gosveturinn 1973 er þeir björguðu skipshöfninni á Frigg VE 316 sunnan við Grindavík eftir að Frigg hafði fengið á sig brotsjó,“ segir hann. Þetta hafi gerst 29. mars. Sást síðast á reki nærri Krísuvíkurbjargi Óskar vísar til frásagnar Morgunblaðsins daginn eftir þennan atburð. Þar segir undir fyrirsögninni Frigg VE stjórnlaus undan brotsjó að vél Friggjar hafi drepið á sér er sjór komst í olíuna og bátinn rekið stjórnlaust að landi. Þegar báturinn hafi verið aðeins um eina mílu frá landi hafi skipverjarnir farið í gúmmíbát og áhöfnin á Sigurði Gísla flutt mannskapinn í land. Síðast hafi sést til Friggjar á reki skammt utan við Krísuvíkurbjarg. Nýttur í systurskip í Eyjum Sigurður Gísli VE var gerður út þar til 18. september 1974 að eldur varð laus í vélarrúmi bátsins á leið til veiða við Vík í Mýrdal. Óskar segir að kallað hafi verið í Lóðsinn frá Vestmannaeyjum og að ekki hafi verið unnt að að slökkva eldinn í hinum brennandi bát fyrr en komið hafi verið með hann til hafnar í Vestmannaeyjum. Nýttur í systurskip í Eyjum Í Morgunblaðinu 19. september 1974 er sagt frá eldsvoðanum í Sigurði Gísla VE undir fyrirsögninni Eldtungurnar aftur úr bátnum á toginu. Kemur fram að eldurinn hafi komið upp skammt utan Reynisdranga. Vestmannaeyjabáturinn Sindri hafi tekið áhöfnina um borð og síðan bátinn í tog. „Veður fór versnandi á þessum slóðum og slitnaði Sigurður Gísli aftan úr Sindra og rak síðan brennandi vestur með landi. Um kvöldmatarleytið í gærkvöldi var báturinn kominn 8 mílur vestur af Portlandi, en skömmu seinna kom Lóðsinn í Vestmannaeyjum á vettvang og tók bátinn í tog til Eyja,“ segir í Morgunblaðinu þennan dag. Gísli Sigmarsson var þá útgerðarmaður á Elliðaey VE 45, sem smíðuð var eftir sömu teikningu og Sigurður Gísli. „Það var ýmislegt sem Gísli gat notað úr Sigurði Gísla á Elliðaey, svo sem nýr hvalbakur sem var á Sigurði Gísla og Gísli flutti yfir á Elliðaey,“ segir Óskar. Þegar ekki hafi verið hægt að hirða meira úr bátnum hafi Gísli dregið hann upp í fjöruna við Bakka, þar sem flakið hafi rekið í land. „Bændur á svæðinu notuðu það sem þeir gátu úr flakinu. Eftir stendur kinnungur bátsins og er sýnilegur öllum sem langar að líta á.“ Ferðaplan í fótboltaferð Í vor voru synir Friðriks skipstjóra, Óskar og bræður hans, í ferð til Englands til að fylgjast með Manchester United. Ferðina hafði Ásmundur fengið í sjötugsafmælisgjöf í janúar. „Við vorum að ræða saman um Sigurð Gísla og flakið af bátnum. Enginn okkar hafði skoða flakið og við sammæltumst um að gera gangskör í því í sumar og fara að flakinu,“ segir Óskar. Nánast stanslaus straumur að flakinu Strax eftir Þjóðhátíð í Eyjum á dögunum fór Óskar með björgunarbátnum Þór og var utan við dæluhúsið í Bakkafjöru þaðan sem stutt er í flakið. „Ég sá að það var nánast stanslaust sem fólk var að koma við hjá flakinu og skoða það og ég varð þá ákveðinn í að nú yrðum við að drífa í því að hittast við flakið og mynda okkur saman þar,“ segir hann. Stefnumót í Landeyjahöfn Föstudaginn 14. ágúst var Óskar nýbúinn að vera á Grundarfirði að mynda almyrkvann og á leiðinni heim með þrjú barnabörn sín til að leita að lundapysjum í Eyjum. Þeir bræður hittust þá í Landeyjahöfn. „Elías bróðir kom með Herjólfi frá Eyjum og Ásmundur hafði átt erindi undir Eyjafjöllum,“ segir hann. Langaafabörn með í för Langafabörn Friðriks Ásmundssonar skipstjóra við flak Sigurðar Gísla VE. Mynd/Óskar P. Friðriksson Að sögn Óskars er ekki lengra að flaki Sigurðar Gísla frá Landeyjahöfn en svo að yngsta barnabarn hans, Emil Sölvi Brynjólfsson, sem verður bráðum fjögurra ára, hafi gengið að flakinu eins og að drekka vatn. Systkin Emils, þau Malín Erla og Kári Kristinn Brynjólfsbörn, hafi einnig gengið með til að skoða bátinn sem langafi þeirra átti einu sinni. „Þetta var ógleymanleg ferð“ Myndataka í Bakkafjöru. Óskar segir að Malín Erla hafi verið dugleg að mynda þá bræður við kinnunginn á Sigurði Gísla og við hádekkið og þeir haft gaman af því. „Veðrið var einstaklega gott þennan dag, sólskin og hiti hátt í 20 gráður, þannig að það var notalegt að labba eftir fjörunni að flakinu. Þetta var ógleymanleg ferð,“ segir Óskar P. Friðriksson.

Share this article