Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jarðskjálfti upp á 6,6 í Kólumbíu

Read Full Article →

Jarðskjálfti af stærðinni 6,6 varð í Kólumbíu í dag. Upptök hans voru í vesturhluta landsins. Fyrstu fregnir herma að byggingar í höfuðborginni Bógóta og í Quito höfuðborg Ekvador. Skjálftinn fannst einnig í Panama. Mæling skjálftans kemur frá jarðvísindastofnun Kólumbíu en sambærileg stofnun í Bandaríkjunum, USGS, segir skjálftann vera 7,4 að stærð. Byggingar í Bógóta hafa verið rýmdar vegna skjálftans. Nubia Carolina Córdoba-Curi héraðsstjóri í Chocó-héraði, þar sem skjálftinn átti upptök sín, segir á X að í borginni Quibdó hafi orðið slys á fólki og byggingar skemmst mikið. Verið sé að meta tjónið. Fréttin verður uppfærð.

Share this article