Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Náði ekki kasti sem hún var sátt með

Read Full Article →

Elísabet Rut Rúnarsdóttir varð sjötta í A-riðli sleggjukastskeppni kvenna á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham í kvöld. Tólf komast í úrslit. Lengsta kast hennar var 67,50 metrar. Hún hefur litla trú á að það dugi henni í úrslit, enda var hún afar svekkt eftir keppni kvöldsins. Elísabet Rut Rúnarsdóttir þarf að bíða eftir því að sjá hvernig keppni í B-riðli sleggjukastskeppninnar á EM í frjálsíþróttum fer upp á það hvort hún komist í úrslit. Hún er þó svartsýn á það. „Þetta byrjaði allt í lagi en ég bara einhvern veginn náði ekki að tengja eins og ég vildi í dag og náði því miður ekki kasti sem ég var sátt með,“ sagði Elísabet Rut við RÚV strax eftir að keppni í A-riðli lauk í Birmingham í kvöld. Svartsýn á að komast í úrslit „Það var bara eitthvað tengingarleysi í þessu hjá mér sem ég komst ekki yfir inni á vellinum, þannig að því miður fór þetta ekki lengra í dag,“ sagði Elísabet sem er sjötta eftir keppni í A-riðli. Tólf komast í úrslit og það verður því tæpt að hún nái inn í úrslitin sem verða á miðvikudag. Aðeins sex keppendur í B-riðli mega kasta lengra en Elísabet svo hún komist í úrslit. „Ég vil ekkert vera með einhverjar vonir um að komast í úrslitin eftir þessa kastseríu. Ég vil frekar verða ótrúlega glöð óvænt á eftir frekar en að fara með einhverjar vonir í að horfa á þennan seinni riðil og verða svo svekkt eftir á. En ég verð auðvitað ótrúlega glöð ef ég kemst áfram en ég hef ekki mjög háar vonir.“ Reynslubankinn fyllist víst aldrei Elísabet var vonsvikin með sína keppni í kvöld. „Já, þetta var ekki það sem ég kom hingað til að gera. Sumar keppnir eru samt þannig og ég verð bara að læra af þeim. Ég tek þetta inn í haustið með mér og læri af þessu,“ sagði Elísabet Rut Rúnarsdóttir við RÚV. „Reynslubankinn fyllist víst aldrei, þannig ég verð bara að halda áfram að bæta í hann.“ Keppni í B-riðli hefst klukkan 19:38, Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir í honum. Eftir B-riðilinn kemur þar með í ljós hvort Ísland muni eiga einn, tvo eða engan keppanda í úrslitum sleggjukastskeppninnar á EM á miðvikudagskvöld.

Share this article