Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stressandi að sitja í stúkunni og bíða

Read Full Article →

Sindri Hrafn Guðmundsson var hæst ánægður þegar ljóst varð að hann væri kominn í úrslit spjótkastskeppninnar á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham. Sindri kastaði í A-riðli og var í 8. sæti eftir hann og þurfti því að bíða eftir að B-riðlinum lyki upp á að vita hvort það dygði honum inn í úrslit. Lengsta kast Sindra var 79,21 metrar og það skilaði honum að lokum 11. sæti forkeppninnar en tólf komust í úrslit. „Tilfinningin að vera komin í úrslit er mjög góð. Það var samt mjög stressandi að sitja í stúkunni og bíða eftir að B-riðillinn kláraðist. Við biðum þangað til það voru tveir eftir þar því þá var ég orðinn öruggur inn í úrslitin. Þannig að þetta var stress, en hrikalega góð tilfinning, ekki spurning,“ sagði Sindri Hrafn við RÚV þegar ljóst var að hann væri kominn í úrslit spjótkastskeppninnar á EM í Birmingham. Úrslitin verða á laugardagskvöld. Sindri Hrafn Guðmundsson segir það hafa verið stressandi að bíða eftir staðfestingu þess að hann væri kominn í úrslit í spjótkasti á EM í frjálsíþróttum. Hann kastaði 79,21 metra og varð ellefti í forkeppninni. Úrslitin verða á laugardag. „Mér fannst köstin mín eiga að vera aðeins lengri í dag. Ég á að getað kastað lengra, þannig ég get vonandi bara komið í úrslitin núna og sýnt það. Þetta var nóg í þetta skiptið, en við reynum að gera þetta ekki kannski alveg svona stressandi næst kannski. En frábært að vera kominn í úrslit.“ Gaf allt en getur vel kastað lengra Sindri kastaði 77,49 metra í fyrsta kasti, gerði annað kastið svo ógilt en endaði á kasti upp á 79,21 metra sem skilaði honum að lokum ellefta besta árangrinum í forkeppninni og hann verður því einn þeirra tólf sem keppa í úrslitum spjótkastskeppninnar á laugardagskvöld. „Fyrsta kastið var ágætt, nema ég fór með afturendann á spjótinu í tartanið, þannig ég klúðraði svolítið útkastshorninu. En mjög mikill kraftur í því. Annað kastið fór ég eiginlega bara í gegnum blokkina án þess að nokkurn kraft úr henni. Ég fór því eiginlega fram úr og náði ekki að stoppa í tæka tíð áður en kom að línunni. En það kast var aðeins styttra hvort sem er. En í síðasta kastinu gaf ég allt sem ég átti. Það var fínasta kast, en mér fannst ég samt getað fengið aðeins meiri kraft úr blokkinni þar. En kastið var mjög fínt þrátt fyrir það. Þess vegna fór það yfir 79 metra og það var nóg í dag greinilega,“ sagði Sindri um köstin sín. Sindri Hrafn Guðmundsson segir það hafa verið stressandi að bíða eftir staðfestingu þess að hann væri kominn í úrslit í spjótkasti á EM í frjálsíþróttum. Hann kastaði 79,21 metra og varð ellefti í forkeppninni. Úrslitin verða á laugardag. Sindri keppti á heimsmeistaramótinu í Tókýó í fyrra og er á sínu þriðja Evrópumóti eftir að hafa keppt líka á EM 2018 í Berlín og á EM 2024 í Róm. Hann er þó kominn í úrslit á stórmóti nú í fyrsta sinn. „Það hefur verið langur vegur að komast hingað, í gegnum meiðsli og annað. En þetta auðvitað sýnir manni að vinnan gefur ef þú ert duglegur og gerir það sem þú átt að gera, að þá getur allt gerst.“ Engin pressa að kasta spjóti langt Sindri var óhræddur að lýsa því yfir fyrir Evrópumótið að hann ætlaði sér í úrslit. En hvað ætlar hann að gera í úrslitunum? „Það verður það sama, að kasta vel og að kasta langt. Maður veit aldrei hvað þarf til að komast í hóp átta efstu. Það yrði auðvitað hrikalegur plús að komast á þann stað og ég stefni að sjálfsögðu þangað. Ég á heima hérna á meðal þessara karla og ég veit að ég get kastað lengra. Það kemur bara í ljós hvað kemur á laugardaginn.“ En fer Sindri pressulaus, verandi í úrslitum stórmóts í fyrsta sinn? „Ég er meðvitaður um að þetta getur verið spennufall. En ég hef komist tvisvar í úrslit á EM u20 og u22. Þannig ég hef alveg reynslu af því að keppa í úrslitum, en auðvitað ekki í fullorðnisflokki. En pressa? Ég er bara að fara að leika mér við að kasta spjóti eins langt og ég get. Ég myndi ekki segja að það sé einhver pressa. Það er bara að mæta og hafa gaman og bomba á það,“ sagði Sindri Hrafn Guðmundsson.

Share this article