Runólfur Þórhallsson, sviðstjóri almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, segir að það hafi gengið mjög vel í dag enda hafi viðbúnaður vegna sólmyrkvans verið vel undirbúinn. Fólk kom saman víða á vestanverðu landinu í tilefni almyrkvans sem gekk yfir landið á sjötta tímanum. „Við höfum verið í raun og veru í hálft ár í undirbúningi fyrir þetta. Það virðist vera að skila sér – góður undirbúningur,“ segir Runólfur. Hann ræddi viðbúnað vegna sólmyrkvans í Speglinum í kvöld, um tuttugu mínútum eftir að almyrkvinn gekk yfir. „Nú er það heimferðin og við erum með augun á því núna. En dagurinn hefur í raun og veru bara gengið eftir áætlun.“ Umferðin vestur á land var þung í dag. Þó mynduðust ekki neinar miklar tafir eða teppur. „Það voru mörg sem fóru af stað í gær, góðu heilli, þannig þetta hefur dreifst bara mjög vel. Það hefur vissulega verið þungt á köflum en engar svona alvarlegar umferðateppur.“ Viðbúnaður vegna sólmyrkvans hefur verið í undirbúningi síðan í desember. Veðurspá gerði almannavörnum erfiðara að áætla hvert fólk myndi ferðast til að horfa á myrkvann. Margháttaður undirbúningur Í desember hófu viðbragðsaðilar að undirbúa viðbúnað vegna sólmyrkvans. „Þá byrjuðum við að ræða saman um þetta – hvaða sviðsmyndir það væru sem við þyrftum að takast á við og svo jafnt og þétt höfum við bætt í. Gert sérstakar aðgerðaráætlanir um hvernig við ætlum að haga viðbragðinu vitandi það að umferðin yrði þung og að það yrði mikill mannsöfnuður á ákveðnum stöðum. Veðurspáin setti ákveðna óvissuþætti í þetta líka.“ Undirbúningur var þrískiptur. „Það var stýrihópur á vegum stjórnvalda, sjö ráðuneyti komu að stýrihópnum, svo var þessi hópur sem almannavarnadeildin leiddi, hópur viðbragðsaðila sem var að undirbúa það hvernig við myndum takast á við ef það kæmi eitthvað upp á sem lögregla, sjúkralið, Gæslan eða björgunarsveitir þyrftu að takast á við. Síðan í lokin var þessi upplýsingahópur sem var að vinna líka. Þetta er búið að vera margháttaður undirbúningur.“ Fjöldi skemmtiferðaskipa við landið visst áhyggjuefni Runólfur segir að ótrúlega margar sviðsmyndir í kringum sólmyrkvann hafi verið skoðaðar. Ein sú alvarlegasta sneri að miklum fjölda skemmtiferðaskipa sem eru við landið. „Það eru fjöldamörg skemmtiferðaskip með ansi mikið af fólki úti fyrir Vestfjörðum og úti fyrir Vesturlandi. Þannig að við urðum að horfa á það: Hvernig getum við tekist á við að taka á móti einhvers konar ástandi um borð í skemmtiferðaskipi ef það kæmi upp einhver hópsýking eða slys úti á hafi? Við erum búin að velta ansi mörgu fyrir okkur núna undanfarna mánuði. En sviðsmyndin síðastliðnar vikur hefur snúist dálítið um veðurspána, hvert mannfjöldinn myndi stefna og sem betur fer voru þau á Vesturlandi og Vestfjörðum búin undir þetta,“ segir Runólfur.