Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Hilmar Örn keppir til úrslita og þrjú synda í undanrásum

Read Full Article →

Evrópumótin í sundi í París og frjálsíþróttum í Birmingham eru alla vikuna og keppt er bæði í morgun- og kvöldhlutum á báðum mótum í dag. Alls keppa fimm Íslendingar. Dagskrá dagsins 07:25 Sund [RÚV] 09:30 Frjálsíþróttir [RÚV] 16:25 Sund [RÚV] 18:00 Frjálsíþróttir [RÚV 2] Hvað gerir Hilmar Örn í úrslitum? Í frjálsíþróttunum keppir Guðni Valur Guðnason í undanrásum í kringlukasti karla. Hann er í seinni kasthópnum sem á að byrja um klukkan 11:00. Hilmar Örn Jónsson kastar svo í úrslitum sleggjukastsins klukkan 18:10 í kvöld, í beinni útsendingu á RÚV 2. Frjálsíþróttadagskrá dagsins Morgunhluti 9:33 - Hástökk karla, undanrásir 9:35/11:00 - Kringlukast karla, forkeppni (Guðni Valur Guðnason) 9:45 - 400 m grindahlaup kvenna, undanúrslit 10:15 - 100 m hlaup karla, undanrásir 10:40 - 110 m grindahlaup karla, undanrásir 11:05 - 800 m hlaup kvenna, undanrásir 11:40 - 400 m grindahlaup karla, undanrásir Kvöldhluti 18:05 - Stangarstökk kvenna, forkeppni 18:10 - Sleggjukast karla, úrslit (Hilmar Örn Jónsson) 18:25 - 5000 m hlaup kvenna, úrslit 18:55 - 100 m grindahlaup kvenna, undanúrslit 19:16 - Langstökk karla, úrslit 19:32 - 100 m hlaup karla, undanúrslit 20:00 - 400 m hlaup karla, undanúrslit 20:30 - 100 m grindahlaup kvenna, úrslit 20:47 - 100 m hlaup karla, úrslit Tvö keppa í sínu fyrsta sundi Á EM í sundi keppa þrír Íslendingar í undanrásum nú í morgunsárið. Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, sem keppti í 100 metra skriðsundi í gær, syndir 50 metra flugsund. Birgitta Ingólfsdóttir keppir í fyrri grein sinni, 100 metra bringusundi, og Guðmundur Leo Rafnsson í fyrstu sinni af þremur, 200 metra baksundi. Sunddagskrá dagsins Morgunhluti - 07:30 50 m flugsund kvenna (Jóhanna Elín Guðmundsdóttir) 100 m skriðsund karla 100 m bringusund kvenna (Birgitta Ingólfsdóttir) 200 m baksund karla (Guðmundur Leo Rafnsson) 4x100 m fjórsund, blandað 800 m skriðsund karla Kvöldhluti - 16:25 200 m baksund kvenna, úrslit 50 m flugsund karla, úrslit 100 m bringusund kvenna, undanúrslit 100 m skriðsund kvenna, úrslit 100 m bringusund karla, úrslit 200 m baksund karla, undanúrslit 50 m flugsund kvenna, undanúrslit 100 m skriðsund karla, undanúrslit 800 m skriðsund kvenna, úrslit 4x100 m fjórsund, blandað, úrslit

Share this article