Nvidia hefur samið við nokkra af stærstu bönkum og fjárfestingarfélögum heims um allt að 500 milljarða dala fjármögnun á gervigreindarinnviðum. Meðal þeirra eru Apollo, BlackRock, Blackstone, Brookfield, Goldman Sachs og KKR. Á vef BBC segir að fjárfestar líti nú í auknum mæli á tölvuafl (e. compute ) sem sérstakan flokk innan fjárfestingageirans. Fjármagnið verður meðal annars nýtt í verkefni Nvidia og samstarfsaðila þess og búast má við uppbyggingu nýrra gagnavera sem munu hýsa gríðarlegt magn örgjörva sem þarf til að þjálfa og keyra gervigreindarlíkön. Sjá einnig Nvidia veðjar 5 milljörðum dala á stofnanda OpenAI Á sama tíma verður fjármagnið einnig nýtt til uppbyggingar verksmiðja sem munu framleiða örgjörvana sjálfa fyrir gervigreindina. Meðal þeirra fyrirtækja sem notast við örgjörva Nvidia eru Google, Meta, Amazon, Microsoft, SpaceX, Tesla, OpenAI og Anthropic. Þau fyrirtæki hafa nú samanlagt varið meira en billjón dala í gervigreindarverkefni á undanförnum þremur árum. Gert er ráð fyrir enn meiri fjárfestingum á næstu árum en eftirspurn eftir örgjörvum og þjónustu Nvidia hefur hjálpað félaginu að fimmfalda markaðsvirði sitt á þremur árum.