Nvidia hefur fjárfest í Cloverleaf Infrastructure, fyrirtæki sem sérhæfir sig í að tryggja raforku og þróa lóðir fyrir stór gagnaver. Fjárfestingin er liður í vaxandi áherslu Nvidia á uppbyggingu innviða fyrir gagnaver. Wall Street Journal greinir frá málinu. Upphæð fjárfestingarinnar hefur ekki verið gefin upp en samkvæmt heimildum Wall Street Journal nam hún nokkrum hundruðum milljóna dala. Cloverleaf hefur á undanförnum tveimur árum tryggt raforku fyrir meira en sjö gígavött af gagnaverkefnum, meðal annars fyrir Oracle og OpenAI. Fyrirtækið undirbýr nú jafnframt verkefni sem krefjast meira en tíu gígavatta af raforku. Tryggir raforku fyrir gagnaver Nvidia hefur á síðustu mánuðum aukið fjárfestingar í fyrirtækjum sem sjá um raforku fyrir gagnaver. Með fjárfestingu í Cloverleaf tryggir fyrirtækið sér frekari aðkomu að verkefnum sem eru enn á undirbúningsstigi. Fyrr í þessum mánuði fjárfesti Nvidia í SB Energy, sem vinnur að uppbyggingu stórs gagnavers fyrir OpenAI í Ohio. Í byrjun árs fjárfesti Nvidia jafnframt tvo milljarða dala í Lancium, sem þróar raforkuinnviði fyrir gagnaver í Texas. Fjárfestingin í Cloverleaf kemur á sama tíma og aðgangur að raforku hefur orðið einn helsti þátturinn sem takmarkar uppbyggingu nýrra gagnavera í Bandaríkjunum. Nvidia er stærsti framleiðandi gervigreindarflaga og hefur notið mikillar eftirspurnar eftir vörum sínum eftir því sem fjárfesting í gagnaverum hefur aukist. Cloverleaf var stofnað árið 2024 og aflaði 300 milljóna dala í fjármögnun sama ár frá orkufjárfestunum NGP og Sandbrook Capital. Fyrirtækið vinnur með orkufyrirtækjum að því að tryggja raforkusamninga fyrir lóðir þar sem síðar má byggja gagnaver. Með því að tryggja raforkuna áður en framkvæmdir hefjast getur uppbygging gagnavera hafist hraðar þegar fjármögnun og samningar liggja fyrir.