Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nvidia spáir 70% tekjuvexti eftir sterkt uppgjör

Read Full Article →

Nvidia skilaði mettekjum á öðrum ársfjórðungi og spáir því að tekjur aukist um 70% á fjárhagsárinu 2028. Sérfræðingar höfðu áður gert ráð fyrir 45% aukningu. Hlutabréf félagsins hafa hækkað um 7% í dag eftir tilkynninguna í gær. Tekjur fjórðungsins, sem lauk í júlí, námu 96,2 milljörðum dala en markaðsaðilar höfðu búist við 92,3 milljörðum. Að sögn WSJ dróg uppgjörið og bjartsýn spá úr áhyggjum fjárfesta af gífurlegum útgjöldum tengdum gervigreindarinnviðum og fjárhagslegri áhættu Nvidia vegna stuðnings við viðskiptavini sem byggja gagnaver. Nvidia, sem er metið á um 5.400 milljarða dala, hefur ásamt stórum fjárfestingarfyrirtækjum boðist til að fjármagna að hluta allt að 500 milljarða dala uppbyggingu gagnavera. Fyrirtækið hefur einnig stutt við stórt gagnaversverkefni OpenAI í Ohio en gæti þurft að greiða háar fjárhæðir ef fyrirhugaðir leigusamningar ganga ekki eftir. Fjármálastjórinn Colette Kress sagði Nvidia vænta þess að fremstu gervigreindarfyrirtækin, á borð við OpenAI, yrðu stærstu tæknifyrirtæki sögunnar. Þau skorti hins vegar aðgang að nægu reikniafli og þyrftu á fjárhagslegum stuðningi Nvidia að halda. Jensen Huang forstjóri sagði grundvallarbreytingu standa yfir sem snerti öll tölvufyrirtæki. Sérfræðingar vara þó við bili milli stórfelldra fjárfestinga í gagnaverum og þeirra tekna sem endanlegar gervigreindarafurðir skapa. Fyrirtæki eigi enn erfitt með að koma slíkum lausnum í fulla notkun og gætu hætt við verkefni sem standast ekki væntingar. Nvidia væntir engra tekna frá kínverskum gagnaveramarkaði á næsta fjórðungi. Vegna dýrari minniskubba gæti framlegð lækkað úr 75% í 71–72% en síðan náð 72–73%. Huang telur sérhannaða örgjörva sem sum tæknifyrirtæki hafa byrjað að framleiða ekki ógna stöðu Nvidia, enda séu þeir ætlaðir afmarkaðri verkefnum.

Share this article