Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Streymisvika Íslands og Kína hefst í þriðja sinn

Read Full Article →

Þriðja íslensk-kínverska streymisvikan hófst formlega í dag á Hilton Reykjavík Nordica en um er að ræða vikulanga herferð þar sem kínverskir áhrifavaldar auglýsa og selja íslenskar vörur í gegnum kínverska samfélagsmiðla. Viðburðurinn, sem hefst í dag og stendur yfir til 16. ágúst nk., er haldinn undir heitinu Kynningarvika Íslands og Kína á rafrænum viðskiptum. Ísland tók fyrst þátt í hinni árlegu streymisviku árið 2023 en þá voru tíu ár liðin frá því að Ísland og Kína undirrituðu fríverslunarsamning sín á milli. Ísland varð þá einnig fyrsta evrópska þjóðin til að taka þátt í verslunarhátíðinni sem tengdist streymisvikunni. Sjá einnig „Einn svona áhrifavaldur getur selt meira á dag en Kringlan“ Fyrirtækin sem taka þátt í streymisvikunni í ár eru Algalíf og Bioeffect en þau fyrirtæki hafa góða reynslu af samstarfi við kínverska áhrifavalda. Árið 2023 var sölumarkmið vikunnar hjá Bioeffect að selja vörur fyrir tæpar 240 milljónir króna og var því markmiði náð á aðeins tveimur dögum. „Einn áhrifavaldur í þessum hópi sem selur mest er með sölustreymi í beinni útsendingu í þrjá klukkutíma á dag, 5 til 6 daga vikunnar. Hún er með yfir 70 manns í vinnu og hafa mörg þeirra það verkefni að finna hvaða vara verður næst fyrir valinu. Hún selur svo vörur fyrir nokkur hundruð milljónir á mánuði, alveg upp í milljarð eftir því hvaða vörur hún er með. Þannig að einn svona áhrifavaldur getur selt meira á dag en Kringlan,“ sagði Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Bioeffect, í samtali við Viðskiptablaðið á sínum tíma. He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, opnaði viðburðinn með því að undirstrika mikilvægi viðskiptasambands þjóðanna og bætti við að 55 ár væru nú liðin frá því að Ísland og Kína tóku upp stjórnmálasamband. Sjá einnig „Vorið kemur ekki með aðeins einu blómi“ Hann sagði að besta gjöfin í tilefni tímamótanna væri beint flug á milli Kína og Íslands, sem hefst í haust. „Kína er jafnframt næststærsta viðskiptaland Íslands og með þessum flugferðum munu viðskiptatengslin aukast til muna.“ Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandstofu, tók einnig til máls og sagði að útflutningur frá Íslandi til Kína hefði á síðasta ári aukist um 25%. „Við tókum einnig á móti 130.000 kínverskum ferðamönnum í fyrra og mun þeim aðeins fjölga með beinum flugferðum. Meginmarkmið okkar með því er ekki aðeins að fjölga ferðamönnum heldur líka að draga úr árstíðarsveiflum.“

Share this article