Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sá fljótasti í Evrópu kemur frá Bretlandi en Evrópumeistarinn tognaði

Read Full Article →

Öðrum keppnisdegi Evrópumótsins í frjálsíþróttum er lokið. Fljótasti maður Evrópu kemur frá Bretlandi en úrslitin í 100 metra hlaupi karla fóru fram í kvöld. Romell Glave kom fyrstur í mark í 100 metra hlaupi karla. Hann hljóp á 10,09 sekúndum og var sjö sekúndubrotum á undan landa sínum Jeremiah Azu í mark. Owen Ansah frá Þýskalandi varð þriðji en fyrrum Ólympíumeistarinn og ríkjandi Evrópumeistari, Marcell Jacobs frá Ítalíu, tognaði í miðju hlaupi og kom næst síðastur í mark. Nadine Visser frá Hollandi varð Evrópumeistari í 100 metra grindahlaupi kvenna en hún var einum þúsundasta úr sekúndu á undan Piu Skrzyszowsku frá Póllandi sem varð önnur. Militadis Tentoglou frá Grikklandi varð svo Evrópumeistari í langstökki í fjórða sinn en hann vann nokkuð örugglega með stökki upp á 8,44 metra. Ungverskir yfirburðir í sleggjukastskeppninni Hilmar Örn Jónsson var meðal keppenda í úrslitum sleggjukastsins og endaði í sjöunda sæti. Sigurvegarinn kom frá Ungverjalandi en Bence Halász bar höfuð og herðar yfir aðra keppendur í kvöld. Sigurkast Ungverjans var 84,25 metrar, tæpum þremur metrum lengra en kast Merlin Hummel frá Þýskalandi sem varð annar. Kast Halász var bæði ungverskt met og lengsta kast í heiminum á þessu ári. Í 5000 metra hlaupi kvenna varð Ítalinn Nadia Battocletti svo Evrópumeistari, Marta Garcia frá Spáni varð önnur og Micol Majori, líka frá Ítalíu, þriðja. Keppni á mótinu heldur áfram á morgun og bein útsending hefst á RÚV klukkan 9:30. Kvöldhlutinn fer svo af stað klukkan 18:00 á RÚV 2 en Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppir þá í úrslitum í sleggjukasti kvenna.

Share this article