Keppt var til úrslita í fimm greinum á EM í frjálsum í Birmingham í kvöld. Heimamenn fengu sitt fyrsta gull en Norðmenn sóttu tvö. Þá tryggði Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir sér sæti í úrslitum sleggjukastsins með góðri frammistöðu í undankeppninni sem fram fór í kvöld. Fyrstu gullverðlaun mótsins fóru til Hollands en Jessica Schilder varð örugglega Evrópumeistari í kúluvarpi kvenna. Hún kastaði lengst 20,73 metra en öll köst hennar voru lengri en lengsta kast löndu hennar Jorinde van Klinken sem varð önnur með kast upp á 19,64 metra. Ótrúlegur endasprettur hjá Ingebrigtsen Norðmaðurinn Jakob Ingebrigtsen varði Evrópumeistaratitil sinn í 5000 metra hlaupi karla þegar hann kom fyrstur í mark í þeirri grein í kvöld. Ingebrigtsen var á erfiðum stað í brautinni þegar komið var á lokahringinn en átti frábæran endasprett og kom í mark á 13 mínútum og 15,29 sekúndum sem er besti tími hans á þessu ári. Fyrsti keppnisdagur Evrópumótsins í frjálsíþróttum er yfirstaðinn í Birmingham á Englandi. Norðmenn sóttu tvenn gullverðlaun í kvöld og þá fékk heimakonan Amy Hunt gull í 100 metra hlaupi kvenna. Florian Bremm frá Þýskalandi varð annar og Etienne Daguinos frá Frakklandi þriðji en þetta er í fjórða sinn sem Ingebrigtsen verður Evrópumeistari í 5000 metra hlaupi. Hann er sömuleiðis tvöfaldur heimsmeistari í greininni og ríkjandi Ólympíumeistari. Þetta voru ekki einu gullverðlaun Norðmanna í kvöld því boðhlaupssveit þeirra í 4x400 metra boðhlaupi varð örugglega Evrópumeistari. Bretar fengu þar silfur og Hollendingar brons. Fabbri varði titilinn Ítalir gerðu svo vel í kúluvarpi karla. Ríkjandi Evrópumeistarinn Leonardo Fabbri varð aftur Evrópumeistari en hann kastaði lengst 22,31 metra. Landi hans Zane Wir varð annar með kast upp á 21,12 metra og Svíinn Wictor Petersson varð í þriðja sæti. Síðasta grein kvöldsins var svo 100 metra hlaup kvenna. Þar kom heimakonan Amy Hunt fyrst í mark á 11 sekúndum sléttum. Ewa Swoboda frá Póllandi fékk silfur og Delphine Nkansa frá Belgíu brons. Evrópumeistaramótið heldur áfram á morgun en bein útsending frá morgunhlutanum hefst 9:30 í fyrramálið. Þar verður Guðni Valur Guðnason meðal keppenda í kringlukasti.