Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Gullverðlaunin dreifðust jafnt á þjóðir á þriðja degi EM

Read Full Article →

Fjórar greinar kláruðust á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham í kvöld; sleggjukast kvenna, 400 m hlaup karla, 400 m grindahlaup kvenna og 110 m grindahlaup karla. Sú finnska langbest Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir var á meðal keppenda í sleggjukastinu en átti ekki sinn besta dag. Tvö fyrstu köst hennar voru ógild og þriðja fór í búrið en endaði í 67,24 metrum. Það var hin finnska Silja Kosonen sem átti lengsta kastið, 76,28 metra, og í raun átti hún þrjú lengstu köstin og því öruggur Evrópumeistari. Sara Fantini frá Ítalíu varð önnur og Beatrice Nedberge Llano frá Noregi þriðja. Þriðju gullverðlaun Breta á mótinu Bretinn Matthew Hudson-Smith hljóp hraðast allra í 400 metra hlaupi karla eða á 44,17 sekúndum, 23 sekúndubrotum betur en Frakkinn Muhammad Abdallah Kounta sem fékk silfur. Hollendingurinn Jonas Phijffer fékk brons á nýju Hollandsmeti. Þetta var þriðji Evrópumótstitill Hudson-Smith í greininni en hann á að auki tvenn gullverðlaun í 4x400 metra boðhlaupi. Þá fékk hann silfur í 400 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í París 2024 og á silfur og brons frá heimsmeistaramótum. Fyrstu EM-verðlaunin voru gull Emma Zapletalová vann sín fyrstu verðlaun á Evrópumóti þegar hún kom fyrst í mark í 400 metra grindahlaupi kvenna. Hún hljóp á 52,91 sekúndu en hún fékk brons í greininni á HM í fyrra. Emily Newnham frá Bretlandi varð í öðru sæti og Fatoumata Binta Diallo í því þriðja á Portúgalsmeti. Svisslendingurinn sveif yfir grindurnar Lokagrein kvöldsins var svo 110 metra grindahlaup karla. Svisslendingurinn Jason Joseph reyndist sterkastur og hann kom í mark á 13,12 sekúndum. Joseph fékk brons á EM í Róm fyrir tveimur árum en gull á Evrópuleikunum 2023 auk þess sem hann varð Evrópumeistari innanhúss í 60 metra grindahlaupi. Þrír Frakkar voru í úrslitum en einungis Just Kwaou-Mathey náði á verðlaunapall af þeim. Hann fékk silfur og Pólverjinn Jakub Szymanski silfur. Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í forkeppninni í spjótkasti karla á morgun. Hann er í A-riðli sem byrjar 12:48 en bein útsending frá mótinu hefst 09:30 á RÚV í fyrramálið.

Share this article