Lærisveinn Gjert Ingebrigtsen kláraði ekki 5.000 metra hlaup karla á Evrópumótinu í frjálsíþróttum nýverið. Jakob Ingebrigtsen, sonur Gjerts, vann hlaupið eftir svakalegan endasprett. Kæru portúgalska frjálsíþróttasambandsins var vísað frá. Pinto er einn af fáum sem Gjert þjálfar, en hinum norska var meinaður aðgangur á mótið til að vernda keppendur. Hvað gerðist? Hinn portúgalski José Carlos Pinto náði ekki að klára hlaupið eftir að Norðmennirnir Magnus Tuv Myhre og Jakob Ingebrigtsen lentu í smávægilegri snertingu við Pinto. Svo fór að þeir snertu hvorn annan með eins konar dómínó-áhrifum. Pinto kláraði ekki en Ingebrigtsen vann og Myhre varð í 5. sæti. Pinto hljóp út af brautinni þegar afar lítið var eftir og virtist hálf uppgefinn. Gjert Ingebrigtsen er þjálfari Pinto en hann hefur ekki þjálfað syni sína eða fyrir norska sambandið frá því að dómsmál Ingrebrigsten-fjölskyldunnar gegn honum var tekið fyrir. Málið í hlaupinu lýtur að því hvort að Myhre hafi hlaupið á óeðlilegan máta og þar með haft áhrif á Pinto. Dómsnefnd hefur hins vegar metið að Myhre hafi hlaupið á eðlilegan máta í keppnishlaupi. Pinto hafði brotið sig frá aðalhópnum lengi vel. Rétt fyrir lokahringinn féll hann aftar í goggunarröðinni. Kvörtun Portúgala var lögð fram í gær. Auka hvatning að mæta Jakob Pinto var spurður um tilhugsunina að mæta Ingebrigtsen í hlaupi í viðtali við portúgalska miðilinn Lusa. Hann sagði að það gæfi honum aukna hvatningu. „Það er auka hvatning að mæta Ingebrigtsen. Ég held að það sé eins hjá þjálfaranum mínum, en ég get ekki talað fyrir hann,“ sagði Pinto. Fékk ekki að mæta á mótið sem þjálfari Gjert Ingebrigtsen vildi ekki tjá sig um málið við norska miðilinn Verdens Gang. Hann fékk ekki leyfi til að vera viðstaddur Evrópumótið þar sem mótshaldarar neituðu honum um aðgengi. Mótshaldarar segja þetta til að vernda keppendur en bræðurnir Henrik, Jakob og Filip Ingebrigtsen hafa sagt að þeir vilji ekki sjá föður sinn á keppnisstöðum. Gjert hefur ekki fengið leyfi til að vera viðstaddur sem þjálfari á stærstu alþjóðlegu mótunum frá 2022. Hann fær ekki passa (e. accredidation) til að vera á upphitunar- og keppnissvæðum fyrir keppendur. Mót sem hann hefur ekki fengið að vera viðstaddur sem þjálfari: HM 2022, 2023, 2025, ÓL 2024 og EM 2024 og 2026. Síðasta stóra mót sem hann var viðstaddur var EM 2022. Lögfræðingar Gjerts hafa mótmælt ákvörðuninni harðlega. Kanadamenn báru fyrir sig í skipulagningu HM 2025 að Ingebrigtsen hefði ekki komist í gegnum öryggisathugun fyrir leika. Lærisveinunum fækkar og fækkar Hann hefur ekki þjálfað fyrir norska sambandið um tíma en þjálfaði þó annað norskt íþróttafólk. Samstarfi Gerts og Narve Gilje Nordås, Per Svela and Kieran Lumb lauk snögglega í júlí í ár sökum „þreytu“. Nú þjálfar hann nokkra einstaklinga. Þar á meðal eru portúgölsku hlaupararnir Pinto og Patricia Silva. Hvernig fór dómsmálið? Gjert var að lokum sýknaður af helstu ásökunum um ofbeldi við þjálfun á börnum sínum. Hann var þó dæmdur í 15 daga fangelsi fyrir líkamlegt ofbeldi gegn dóttur sinni. Þá slitu öll börnin þjálfunarsamstarfi við föður sinn. Norska frjálsíþróttasambandið íhugaði seint á síðasta ári að kæra Gjert fyrir að brjóta gegn íþróttalögum en að lokum var ekki talinn grundvöllur fyrir því. 1500 metrarnir fram undan Í 1500 metra keppni munu bræðurnir Jakob og Filip keppa gegn Pinto. Auk þess verður Narve Gilje Nordås, fyrrum lærisveinn Gjert, meðal keppenda. Keppt verður í undankeppni á föstudaginn og í úrslitum á laugardaginn.