Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ingebrigtsen ekki með í 1500 metra hlaupinu á EM

Read Full Article →

Jakob Ingebrigtsen verður ekki meðal keppenda í 1.500 metra hlaupi á Evrópumótinu í Birmingham og allt bendir til þess að hann einbeiti sér eingöngu að 5.000 metra hlaupinu í endurkomu sinni. Norski hlauparinn hefur orðið Evrópumeistari í bæði 1.500 og 5.000 metrum á þremur mótum í röð, en þrátt fyrir að hafa náð lágmarki í 1.500 metra hlaupinu er hann ekki skráður sem þátttakandi. Fyrr í vikunni staðfesti Ingebrigtsen að hann tæki þátt á EM, þótt hann hafi ekki keppt á þessu tímabili vegna meiðsla. Hann fór í aðgerð á hásin í febrúar og hefur unnið sig jafnt og þétt til baka. Ef ekkert breytist verður 5.000 metra hlaupið fyrsta keppni hans síðan á heimsmeistaramótinu í fyrra. EM í frjálsum verður í beinni útsendingu á RÚV dagana 10-16 ágúst

Share this article