Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sá að sér eftir að hafa urðað yfir keppinauta og kallað þá aumingja

Read Full Article →

Norski hlaupagarpurinn Jakob Ingebrigtsen hefur beðist afsökunar á harkalegum ummælum um andstæðinga sína. Ingebrigtsen varð í fjórða sæti í 1500 metra hlaupi í úrslitum Demantamótaraðarinnar í Brussel á föstudaginn var. Eftir hlaup var hann nokkuð harðorður í garð andstæðinga sinna sem nýttu sér að hlaupa fyrir aftan Ingebrigtsen. Hann leiddi allt hlaupið þangað til að 100 metrar voru eftir og var þá skilinn eftir. Hann sagði að andstæðingar sínir væru þvílíkur hópur af lúserum. „Þvílíkur hópur af lúserum sem ég er að keppa við. En ég tapaði, ég er einfaldlega ekki nógu góður. Ég reyni mitt allra besta og hleyp til að vinna, en ég er bara ekki nógu sterkur,“ sagði Ingebrigtsen við NRK. „Þetta er allt í lagi núna, en vá, þvílíkur hópur af lúserum.“ Ástralinn Cameron Myers vann á 3:30,14. Danski hlauparinn Kristian Uldbjerg svaraði Ingebrigtsen og sagði þetta hluta af íþróttinni. Ingebrigtsen hefur sjálfur notað taktíkina óspart í hlaupum. Þá fer aftari hlauparinn í skjól fyrir aftan þann fremri, eða þann fremsta. Með því sparar hann orku og fær auk þess auka skjól fyrir vindi og minni loftmótstöðu. Þá á hann inni meiri orku fyrir lokasprettinn. Baðst afsökunar en stóð við gagnrýnina Ingebrigtsen sagði svo degi seinna að hann hefði farið yfir strikið í ummælum sínum. Hann hafði gagnrýnt bandaríska hlauparann Cole Hocker, einn af sínum helstu keppinautum, eftir hlaupið. Ingebrigtsen taldi að Hocker og hans lið hefðu átt að standa við þann hraða sem þeir sögðu fyrir fram að þeir ætluðu að hlaupa á. „Ég hefði ekki átt að kalla neinn aumingja. Ég biðst afsökunar á því. Það var fyrir neðan allar hellur, óháð adrenalíni og tilfinningum,“ sagði Ingebrigtsen við Verdens Gang. Hann stóð hins vegar við gagnrýni sína á Hocker og teymi hans. Hocker er ríkjandi Ólympíu- og heimsmeistari í vegalengdinni. Umboðsmaður Hocker hefur svarað Ingebrigtsen og segir að væl hans sé vandræðalegt. „Þetta snýst um að taka ábyrgð á þeim skuldbindingum sem maður hefur gefið mótshöldurum, áhorfendum og keppendum,“ segir Ingebrigtsen sem telur að Hocker og hans teymi hafi lofað áhorfendum ákveðnum hraða. Ingebrigtsen og Hocker ræddu eftir hlaup og töldu málið vera grafið, en umboðsmaður Hocker vakti málið aftur til lífs. „Við erum búnir með þetta mál, þannig að ég skil ekki alveg hvers vegna umboðsmaðurinn er að blanda sér í þetta allt saman núna,“ sagði Jakob. Keppnir fram undan Ingebrigtsen mun keppa á World Athletics Ultimate Championship í Búdapest næstu helgi og heimsmeistaramótinu í götuhlaupum í Kaupmannahöfn 19. september. Þar keppa Baldvin Þór Magnússon, Sigþóra Brynja Kristjánsdóttir, Íris Anna Skúladóttir og Íris Dóra Snorradóttir fyrir Íslands hönd.

Share this article