Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Heimsmet, Evrópumet og mótsmet féllu á EM í sundi

Read Full Article →

Ítalska sundkonan Sara Curtis bætti heimsmetið í 50 metra baksundi kvenna á Evrópumótinu í París í kvöld. Metið sló hún í undanúrslitum þegar hún synti á 26,63 sekúndum. Metið hafði staðið frá 2023 og var í eigu Kaylee McKeown, 26,86 og því bæting upp á 23 sekúndubrot. Þjóðverjinn Johannes Liebmann bætti svo Evrópumetið í úrslitum í 800 metra skriðsundi karla þegar hann kom í mark á 7:37,59. Það gerði hann í úrslitasundinu og er því Evrópumeistari í greininni. Þriðja mótsmet kvöldsins féll svo í 100 metra skriðsundi karla. Það setti Rúmeninn David Popovici með tímanum 46,56 sekúndur en það er einungis 5 sekúndubrotum frá Evrópumeti hans. Líkt og hjá Liebmann kom metið í úrslitum og Evrópumeistaratitillinn þar með Popovici. Öll úrslit Evrópumótsins má finna á heimasíðu mótsins . RÚV sýnir beint frá mótinu en hér er öll dagskráin .

Share this article