Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bætti dagsgamalt heimsmet sitt

Read Full Article →

Fjórða degi EM í sundi í París er lokið en keppt var til úrslita í fimm greinum í dag. Eitt heimsmet féll og svo Evrópumet. Hin ítalska Sara Curtis bætti heimsmetið í undanúrslitum 50 metra baksunds kvenna í gær og gerði sér lítið fyrir og endurtók leikinn í dag í úrslitasundinu. Hún synti á 26,56 sekúndum sem er bæting um 7 hundraðshluta. Þetta er fyrsta Evrópumeistaragull Curtis í 50 metra laug en hún vann sömu grein í fyrra í stuttri laug. Hún hefur átt afar gott mót í París því hún fékk brons í 100 metra skriðsundi og silfur ásamt ítölsku kvennasveitinni í 4x100 metra skriðboðsundi. Vann Evrópumethafann og stal metinu af honum Kristóf Milák frá Ungverjalandi bar sigur úr býtum í 100 metra flugsundi karla á tímanum 49,48 sekúndum sem er nýtt Evrópumet. Frakkinn Massime Grousett átti metið en hann varð einmitt annar í dag. Milák er sigursæll sundmaður og hefur til að mynda orðið heimsmeistari, Ólympíumeistari og Evrópumeistari í 100 og 200 metra flugsundi. Þá á hann heimsmetið í 200 metra flugsundi. Tvenn gullverðlaun sama kvöldið Rétt rúmum klukkutíma seinna synti Milák svo lokasprett ungversku boðsundssveitarinnar í 4x100 metra skriðsundi sem bætti mótsmetið er hún synti á 3:10,03. Barbora Seemanova frá Tékklandi er Evrópumeistari í 200 metra skriðsundi kvenna en hún kom í mark á nýju mótsmeti; 1:54,38. Bretinn Filip Nowacki vann svo 200 metra bringusund karla á 2:07,70. Öll úrslit Evrópumótsins má finna á heimasíðu mótsins . RÚV sýnir beint frá mótinu en hér er öll dagskráin .

Share this article