Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tvö heimsmet féllu í kappgöngu

Read Full Article →

Keppt var í maraþoni og hálfmaraþoni í kappgöngu karla og kvenna á Evrópumeistaramótinu í frjálsum íþróttum í Birmingham í morgun og féllu heimsmet í báðum vegalengdum í kvennaflokki. María Pérez frá Spáni sem er fjórfaldur heimsmeistari, hafði mikla yfirburði í hálfmaraþoni kvenna og kom í mark á 1:30:06 klst. Hún bætti þar með fyrra heimsmetið um meira en tvær mínútur. Það átti hin ítalska Antonella Palmisano, sem setti metið í Tékklandi í maí. Alexandrina Mihai frá Ítalíu varð önnur og Lyudmila Olyanovska frá Úkraínu þriðja. Báðar gengu þær einnig á betri tíma en gamla heimsmet Palmisano. Stórbætti eigið heimsmet Skömmu síðar féll annað heimsmet þegar Sofia Fiorini frá Ítalíu sigraði í maraþongöngu kvenna á 3:15:11 klst. Fiorini bætti eigið heimsmet, sem hún setti í Brasilíu fyrr á árinu, um meira en tíu mínútur. Katarzyna Zdzieblo frá Póllandi varð önnur og Raquel Gonzalez frá Spáni þriðja. Spánverjar fögnuðu einnig sigri í hálfmaraþongöngu karla. Paul McGrath kom fyrstur í mark á 1:23:23 klst. Francesco Fortunato og Andrea Cosi frá Ítalíu fylgdu honum á verðlaunapall. Í maraþongöngu karla sigraði Ítalinn Massimo Stano , en hann er Ólympíumeistari í 20 km kappgöngu frá Tókýó. Stano sigraði á 2:56:49 klst., sem er besti tími ársins í heiminum. Miguel Ángel López frá Spáni varð annar og Frakkinn Aurélien Quinion þriðji. Sindri og Baldvin keppa í kvöld Bein útsending verður frá keppni kvöldsins á EM í frjálsum og hefst hún kl. 18:40. Sindri Hrafn Guðmundsson keppir í úrslitum spjótkastsins kl. 19:01 og Baldvin Þór Magnússon hleypur í úrslitum í 10.000 metra hlaupi kl. 19:25.

Share this article