Innlent | Morgunblaðið | 13.8.2026 | 8:00 | Uppfært 11:05 Aðsend grein: Er virkilega engin áhætta tekin? Geir H. Haarde mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Því er haldið fram að engin áhætta fylgi því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Ísland geti án áhættu fengið að „sjá“ hvað býðst við inngöngu í ESB og hætt svo við, eins og ekkert hafi í skorist, ef ekki tekst að ná „hagstæðum samningi“. Auðvitað er það rétt að Íslendingar geta hafnað aðild ef þeim líst ekki á það sem býðst. En allir vita að aðildarviðræður munu taka nokkur ár, óháð því hvernig þeim lyktar. Á einhverju stigi þarf einnig að nást samkomulag á Alþingi um óhjákvæmilegar breytingar á stjórnarskrá sem samþykkja þarf í tvígang með alþingiskosningum í milli. Allt tekur þetta sinn tíma. Ég óttast að í millitíðinni geti EES-samstarfið stórlaskast og verði ekki svipur hjá sjón vegna þess að íslenska stjórnkerfið, ráðuneyti og stofnanir, verði önnum kafin við vinnu í tengslum við aðildarviðræður og muni ekki geta sinnt öllum skyldum sínum og hagsmunagæslu við framkvæmd EES-samningsins á sama tíma. Í ræðu á norska Stórþinginu 12. maí sl. fjallaði utanríkisráðherrann, Espen Barth Eide, um áhrif aðildarumsóknar Íslands á Noreg og sagði að Norðmenn byggju sig undir að Ísland gæti mögulega orðið aðili að ESB árið 2030. Hann segir á diplómatískan hátt í ræðu sinni (í minni endursögn) að líklegt sé að svigrúm Íslands og framkvæmdastjórnar ESB til að leggja hart að sér við að leita sérstakra lausna innan EES fyrir Noreg, Ísland og Liechtenstein minnki smám saman eftir að viðræður um aðild Íslands hefjist. Þessi ummæli hafa ekki vakið sérstaka athygli en þau hljóta að vera Íslendingum íhugunarefni. Þau benda að mínum dómi til þess að Norðmenn kunni að fara sínar eigin leiðir ef Ísland getur ekki sinnt mikilvægum málum innan EES af fullum þrótti, eins og t.d. samningaviðræðum við ESB um tollaívilnanir á fiski sem samið er um reglulega gegn framlögum landanna í uppbyggingarsjóði ESB til styrktar fátækari löndum innan þess. Noregur er burðarstoðin EFTA-megin í EES-samstarfinu. Norðmenn eru vinir Íslendinga og munu eflaust vilja legga þeim lið í viðræðum við ESB. En sérhver þjóð gætir auðvitað fyrst og fremst sinna eigin hagsmuna og það munu Norðmenn gera áfram í samskiptum sínum við ESB, innan og utan EES, og ekki endilega ganga erinda Íslendinga á þeim vettvangi. Evrópusambandið hefur vitanlega sjálft mun meiri heildarhagsmuni af samskiptum sínum við Noreg en Ísland. Ef aðildarviðræður Íslands og ESB sigla af einhverjum ástæðum í strand eftir einhver ár er alls ekki öruggt að Íslendingar geti gengið að því vísu að innan EES verði allt óbreytt. Noregur og e.t.v. einnig Liechtenstein kynnu þá að hafa markað aðra leið til að gæta sinna hagsmuna. Þá yrði EES-samningurinn ekki áfram það haldreipi sem hann hefur verið í rúma þrjá áratugi og fært Íslendingum ómældan ávinning. Ef illa fer gætum við því glutrað niður EES-samstarfinu og frekari ávinningi af því og í versta falli orðið eins og hvert annað þriðja land í augum ESB. Þetta er raunveruleg áhætta, sem ég tel ástæðu til að vekja athygli á, og þessu þurfa landsmenn að gera sér grein fyrir áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram í lok þessa mánaðar. Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Fyrsta mark Íslendingsins hjá nýja liðinu Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Hefur slæm tenging áhrif á hjónabönd? Engin áform uppi um friðun á ref Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Virðing fyrir verðmætasköpun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maðurinn sem lést var íslenskur Bílvelta á Vesturlandi: Umferðin farin að þyngjast Inga Sæland minnkar við sig Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland minnkar við sig Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Gestir sáu almyrkvann: „Nú er bara að fagna“ Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Fluttur til aðhlynningar eftir fall Myndir: Almyrkvinn sást vel frá Látrabjargi Þurfti lögreglu eftir að hafa læst sig inni í bíl Maðurinn sem lést var íslenskur Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Fyrsta mark Íslendingsins hjá nýja liðinu Bankarnir sagðir stöðva lánveitingar Spá mestu verðbólgu síðan 2024 Hefur slæm tenging áhrif á hjónabönd? Engin áform uppi um friðun á ref Umræðan Atvinnuleysi ungs fólks vex mikið – tökum á því strax! Virðing fyrir verðmætasköpun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Almyrkva náð „Klikkuð“ umferð á Hellissandi og pylsur rjúka út Sólmyrkvi er hafinn Áhugavert að sjá hvernig fólk hegðar sér eftir á Mest lesið Í gær Í vikunni Inga Sæland minnkar við sig Sterkaj látinn laus og vísað úr landi Skoðuðu myndefni af sakborningi í ræktinni Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Gestir sáu almyrkvann: „Nú er bara að fagna“ Bandero gæti allt eins dagað uppi í íslenskri höfn Fluttur til aðhlynningar eftir fall Myndir: Almyrkvinn sást vel frá Látrabjargi Þurfti lögreglu eftir að hafa læst sig inni í bíl Maðurinn sem lést var íslenskur Skátaflokki vísað af móti „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Almyrkvinn: Streymi frá Vestfjörðum Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn Maðurinn sem lést var íslenskur „Maður hefur brotnað nokkrum sinnum niður“ Gefa ókeypis ferð til að sjá almyrkvann árið 2196 Beint: Loksins komið að stóru stundinni Sólmyrkvi er hafinn Myndir: Almyrkva náð Skátaflokki vísað af móti Sögðu að mamma hefði ekki vaknað Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara