Samningurinn um evrópska efnahagssvæðið (EES) heldur ekki velli til lengri tíma. Þetta segir Ine Eriksen Søreide leiðtogi Hægri flokksins í Noregi og fyrrverandi utanríkisráðherra landsins. Søreide, sem var utanríkisráðherra í hægri stjórn Ernu Solberg, tók þátt í umræðum sem fjölmiðillinn Dagens Næringsliv stóð fyrir í tilefni af yfirstandandi Arendalsviku. Hún er árlegur viðburður sem samanstendur af stjórnmálafundum, bæði á landsvísu og staðbundið, í fimm daga. Forgangur ESB annarsstaðar Ummælin voru sett í samhengi við fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar sagði hún að EES-samningurinn héngi í raun á bláþræði. „ EES-samningurinn mun ekki, að mínu mati, halda velli til lengri tíma. Það tel ég, nánast óháð því hvað Ísland gerir,“ segir hún. Hún segist þeirrar skoðunar vegna þess að forgangsmál Evrópusambandsins liggi nú allt annars staðar. Hún bendir jafnframt á að sífellt færri svið falli nú undir EES-samninginn. Espen Barth Eide, núverandi utanríkisráðherra Noregs, sagði í viðtali við RÚV í maí að sífellt erfiðara sé að starfa eftir EES-samningnum. Breytt heimsmynd hefði orðið til þess að Evrópusambandið væri sífellt meira að hugsa um eigin hagsmuni, og þá yrðu hagsmunir EES-ríkjanna ekki í forgrunni. Bæði Hægri flokkurinn og Verkamannaflokkur Eide hafa lengi haft þá stefnu að Noregur eigi að ganga í Evrópusambandið. Það mál var þó ekki í forgrunni í þingkosningunum í Noregi í haust.