Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 31.8.2026 | 6:00 Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Espen Barth Eide er utanríkisráðherra Noregs. Samsett mynd/Sibba/Eyþór Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Nei við viðræðum ekki já við óbreyttu ástandi Halla tjáir sig um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar Eina þjóðaratkvæðagreiðslan sem var samþykkt var um ESB » Fleiri tengdar fréttir „Það verður sífellt erfiðara að vera lítið hagkerfi,“ segir Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, í samtali við blaðamann mbl.is í kjölfar þess að Íslendingar höfnuðu því að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið. Eide segir það mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr að Ísland, Noregur og Lichtenstein virði EES-samninginn og taki hann alvarlega. „Heimurinn er allt annar en hann var fyrir örfáum árum þannig að ég skil það vel að ríkisstjórnin hafi viljað bera upp þessa spurningu en hún spurði þjóðina líka á lýðræðislegan hátt og fékk höfnun á því að skoða hvaða aðrir kostir væru í boði.“ Hefðu Íslendingar samþykkt að hefja aðildarviðræður í þjóðaratkvæðagreiðslu laugardagsins væri samningsstaða Íslands gagnvart sambandinu líklega góð að mati Eides. „Eftir fjölmörg samtöl í Brussel og við mörg aðildarríki ESB hafði ég á tilfinningunni að það væri velvild í garð Íslands, að þau hefðu verið tilbúin að gefa Íslandi góðan samning,“ segir Eide. Frétt af mbl.is Íslendingar hafna aðildarviðræðum Virðir niðurstöðuna fullkomlega Hann nefnir að atkvæðagreiðslan hafi ekki snúist um inngöngu í sambandið og segir að áhugavert hefði verið að sjá hvers lags samning Ísland hefði fengið. Eide tekur það skýrt fram að hann virði lýðræðislega niðurstöðu kosninganna fullkomlega og að Noregur muni halda áfram að vinna náið með Íslandi og Lichtenstein samkvæmt EES-samningnum. „En ég er sannfærður um það að Ísland hefði haft afskaplega sterka samningsstöðu ef það hefði kosið öðruvísi. Þetta var val Íslands og við virðum það fullkomlega,“ segir utanríkisráðherrann norski. Eide segist munu hitta Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir utanríkisráðherra bráðlega þar sem þau munu ræða hvað niðurstaða kosninganna þýði fyrir EES-löndin. Frétt af mbl.is ESB verði harðara í horn að taka Minna svigrúm fyrir frávik frá EES Hvað þýðir niðurstaða atkvæðagreiðslunnar fyrir Noreg? „Þetta staðfestir aftur að það eru enn þrjú lönd sem hafa valið að vera á innri markaði sambandsins og hluti af samþættingu þess í flestum þáttum án þess þó að vera fullgildir meðlimir, sem er í raun sama staða og við vorum í,“ segir hann. „En í ljósi til dæmis Trumps og Pútíns og alls þess sem er að gerast þá er mjög mikilvægt að við tökum Evrópska efnahagssvæðið enn alvarlegar. Við verðum að vinna niður eftirstöðvarnar og við verðum að losna við allar sérkennilegar undantekningar.“ Hann telur að nú sé minna svigrúm fyrir frávik frá almennum reglum EES-samningsins. „Og til að sýna að þetta hafi ekki verið atkvæðagreiðsla gegn ESB eða gegn samþættingu þá held ég að það sé mikilvægt að við vinnum nú saman, Ísland, Noregur og Lichtenstein, og sýnum fram á að við séum góðir, skuldbundnir meðlimir EES,“ segir Eide. Aðildarviðræður ekki á dagskrá Norðmanna Sérðu fyrir þér að Noregur gæti hafið aðildarviðræður við ESB á komandi árum? „Stutta svarið er að ríkisstjórn Noregs hefur engin áform um það eins og er. Við ætlum að halda okkur við EES-samninginn og hina rúmlega 100 aðra samninga. Við erum bókstaflega með meira en 100 samninga við ESB sem þýðir að við erum ofurtengd, án þess að vera meðlimir,“ segir hann. „Maður veit aldrei hvað gerist til lengri tíma litið en í bili höfum við engin áform.“ Hann segir landslagið á alþjóðavettvangi hafa breyst mikið og nefnir þar Donald Trump Bandaríkjaforseta, Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping forseta Kína. Það hafi orðið til þess að EES-samningurinn verndi okkur ekki eins vel og hann gerði. Niðurstaðan ekki áfellisdómur yfir ESB Afstaða Íslendinga var skýr. Hvað finnst þér niðurstaðan segja um stöðu Evrópusambandsins? „Ég held að hver slík þjóðaratkvæðagreiðsla þurfi að vera metin út frá eigin verðleikum. Þannig ég held að í grundvallaratriðum segi þetta meira um það hvar Ísland stendur og hvernig hinn almenni Íslendingur metur meiri eða minni samþættingu,“ segir Eide. Hann segir mörg lönd annars staðar í heiminum vilja ganga í sambandið eða styrkja samstarf sitt við það og nefnir sem dæmi Tyrkland og Kanada. „Mín tilfinning var sú að það væri mikill áhugi fyrir því að taka vel á móti Íslandi og að ESB hefði verið tilbúið að gefa töluvert mikið eftir í þessum viðræðum en við munum aldrei vita það, að minnsta kosti ekki í langan tíma.“ Samtalinu lauk svo á léttara hjali og sagði Eide blaðamanni að mikill áhugi hefði verið á kosningunum í Noregi og að hann hefði sjálfur vakað alla nóttina og fylgst með nýjustu tölum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Þjóðlegir íhaldsmenn höfðu betur á landsbyggðinni Nei við viðræðum ekki já við óbreyttu ástandi Halla tjáir sig um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar Eina þjóðaratkvæðagreiðslan sem var samþykkt var um ESB » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Á fimmta þúsund er saknað Stöku skúrir á landinu í dag Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Skil ekki hvernig ég komst í gegnum það Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dró saman milli já og nei í lokatölum Heimspressan á kjörstað: Já gæti ýtt við Noregi Segir unga fólkið hafa sigrað „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Hart tekist á um bókun 35 Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Hákon VIII. og Björn Skúlason fæddir sama dag Bræðurnir í broddi fylkinga í borginni Vilja svör frá forstjórum símafyrirtækjanna ESB verði harðara í horn að taka Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? Eina þjóðaratkvæðagreiðslan sem var samþykkt var um ESB Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda Nýjast á mbl.is » Á fimmta þúsund er saknað Stöku skúrir á landinu í dag Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Skil ekki hvernig ég komst í gegnum það Mikilvægara nú en áður að virða EES-samninginn Umræðan Málalok Heilsu- og vellíðunarlandið Ísland Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Afstaða lögreglustjóra virðist „fyrirsláttur“ Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? Minna samfellt rennerí en áður „Við höldum ekki áfram með þessar aðildarviðræður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Leituðum skjóls í helli Hart tekist á um bókun 35 Bandaríkin: Ísland áfram öflugur bandamaður Ekki bara að drekka hvítvín Hákon VIII. og Björn Skúlason fæddir sama dag Bræðurnir í broddi fylkinga í borginni Vilja svör frá forstjórum símafyrirtækjanna ESB verði harðara í horn að taka Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? Eina þjóðaratkvæðagreiðslan sem var samþykkt var um ESB Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ „Bakslag fyrir Brussel“ Íslendingar hafna aðildarviðræðum Kristrún: Mikið mun gerast á næstu dögum Ofurölvi ungmenni hlupu í allar áttir Úrslit endanlega kunngjör innan 10 mínútna Hvað sagði Kristrún við erlenda miðla í Hörpu? ESB verði harðara í horn að taka „Þetta er orðið hálfgert mynstur“ Brugðist við niðurstöðunum Jón Gnarr: „Algjörlega óásættanlegt“ Katrín rýfur þögnina „Bakslag fyrir Brussel“ Ríkisstjórnin blæs til blaðamannafundar Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Íslendingar hafna aðildarviðræðum Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Ók viljandi á gangandi vegfaranda

Share this article