Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Tökum enga áhættu með EES-samninginn!

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 15.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Tökum enga áhættu með EES-samninginn! Diljá Mist Einarsdóttir Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Á ráðstefnu evrópskra þingmanna sem ég sótti nýlega fékk ég sömu skilaboðin og svo oft áður: Þið Íslendingar greiðið ekki nóg fyrir EES-samninginn. Þið fáið allt of mikið fyrir ekki neitt. Þetta samtal hef ég átt oftar en ég get talið við þingmenn frá ESB-ríkjum sem kvarta yfir því að við Íslendingar höfum aðgang að því best heppnaða hjá Evrópusambandinu, innri markaðnum. En auðvitað er þetta gagnkvæmur hagur; ESB-ríkin eru helstu innflutningsríki Íslands þótt innflutningur frá Íslandi skipti ESB-ríkin vissulega máli. Á meðan við erum í þessari stöðu þurfa þessir þingmenn að kyngja alls kyns misvinsælu og -lukkuðu – stundum afleitu – regluverki Evrópusambandsins m.a. varðandi ólöglega innflytjendur og landbúnað, svo fá dæmi séu tekin. Og auðugri ríki Evrópusambandsins greiða auk þess háar fjárhæðir til sambandsins umfram styrkina sem þeir hljóta til baka. Grímulaus áróður ESB-sinna Ef það er eitthvað sem hefur komið endanlega og fyllilega í ljós í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu er það grímulaus áróður ESB-sinna gegn EES-samningnum. Það liggur auðvitað í hlutarins eðli að stuðningsmenn þess að Ísland gangi í Evrópusambandið vilja segja upp EES-samningnum. ESB-sinnar hafa þó haldið því fram að þeir séu miklir stuðningsmenn EES-samstarfsins og jafnvel sakað aðra stjórnmálamenn og -flokka um að grafa undan EES-samningnum. Nú koma þeir fram hver á fætur öðrum og endurtaka gamlan óhróður um EES-samninginn. Þeir fullyrða m.a. að við séum ýmist 75-80%, jafnvel að mestu leyti, þegar inni í Evrópusambandinu. Samningurinn er talaður niður og því haldið fram að við séum áhrifalaus í EES-samstarfinu, sem stangast m.a. á við upplýsingar á EES-vef stjórnarráðsins um EES-samninginn. Það er morgunljóst að við tökum ekki upp nándar nærri svo stóran hluta af regluverki ESB gegnum EES. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytisins frá 2018 var hlutfallið 13,4% og hefur aukist eitthvað síðan. Við höfum síðan mýmörg tækifæri til hagsmunagæslu og áhrifa á löggjöf gegnum EES-samstarfið en það er auðvitað undir okkur sjálfum komið. Enginn gætir hagsmuna okkar fyrir okkur. Uppsögn EES-samningsins endanlegt markmið EES-samningurinn er ekki gallalaus en hann er sannarlega mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands. Í gegnum hann fáum við aðgang að yfir 450 milljón manna markaði og verðmætu evrópsku samstarfi en þurfum ekki að taka upp íþyngjandi regluverk sem hentar Íslandi illa, eins og t.a.m. varðandi fiskveiðar og landbúnað. Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra vakti athygli á því með grein í Morgunblaðinu að EES-samstarfinu gæti verið glutrað niður með ESB-leiðangri ríkisstjórnarinnar. Ég tek undir með honum að þetta er áhættusöm vegferð fyrir samstarfið sem er, eins og við sem höfum gætt hagsmuna Íslands þekkjum, ekki fyrsta val ESB-ríkja til samstarfs við Ísland. ESB-ríkin vilja fá Ísland, enda góður biti. Er það vegna skærrar góðvildar eða vegna þeirra eigin hagsmuna? Ég vil standa vörð um EES-samninginn og segi því NEI 29. ágúst. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Óvænt skref hjá Steven Gerrard Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Aðsend grein: Tökum enga áhættu með EES-samninginn! Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Umferðarslys á Fljótsheiði Ekki betur borgið innan ESB Bankinn finnur fyrir samkeppni Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Kirkja afhelguð og fer í fóstur Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Óvænt skref hjá Steven Gerrard Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Aðsend grein: Tökum enga áhættu með EES-samninginn! Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Ekki betur borgið innan ESB Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Kirkja afhelguð og fer í fóstur Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna

Share this article