Átta íslenskir frjálsíþróttakeppendur verða með á Evrópumótinu í Birmingham sem hefst 10. ágúst og stendur til 16. ágúst. EM er haldið á tveggja ára fresti og í Róm fyrir tveimur árum voru einnig átta Íslendingar með, þá höfðu ekki jafn margir Íslendingar keppt á EM í 66 ár eða frá árinu 1958. Þrjár íslenskar konur keppa á mótinu, allar í kastgreinum; kúluvarparinn Erna Sóley Gunnarsdóttir og sleggjukastararnir Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir og Elísabet Rut Rúnarsdóttir. Það verða einnig þrír íslenskir karlkyns kastarar með; Guðni Valur Guðnason í kringlukasti, Hilmar Örn Jónsson í sleggjukasti og Sindri Hrafn Guðmundsson í spjótkasti. Þá keppir Baldvin Magnússon í 10.000 metra hlaupi og Hlynur Andrésson í maraþoni. Af þessum átta keppendum voru sex með á síðasta EM, öll nema Hlynur og Baldvin sem var þó með á EM innanhúss í fyrra þar sem hann keppti í 3000 metra hlaupi. Fleiri Íslendingar voru ekki langt frá því að tryggja sér þátttökurétt og þá sér í lagi kringlukastarinn Hera Christensen sem var tveimur sætum frá því að komast inn. Sýnt verður beint frá öllum keppnsishlutum á EM í frjálsum á rásum RÚV. Mótið hefst þann 10. ágúst og lýkur 16. ágúst.