Einar Margeir Ágústsson keppti í sinni þriðju og síðustu einstaklingsgrein á Evrópumótinu í sundi í morgun. Líkt og í fyrri greinunum tveimur bætti hann persónulegt met sitt í 50 metra bringusundi í dag. Einar synti 50 metra bringusundið á 27,77 sekúndum sem er bæting um 0,12 sekúndur. Hann endaði í 30. sæti af 67 keppendum og komst ekki í úrslit. Þetta er þriðja greinin sem Einar keppir í á EM í París og hann hefur bætt sitt persónulega met í þeim öllum. Hann hefur þó ekki lokið keppni á mótinu því á sunnudag mun íslenska karlasveitin synda 4x100 metra fjórsund. Jóhanna Elín líka á persónulegu meti Jóhanna Elín Guðmundsdóttir synti 50 metra skriðsund í morgun og líkt og Einar Margeir bætti hún sitt persónulega met þegar hún kom í bakkann á 25,66 sekúndum. Bætingin var um einn hundraðshluta úr sekúndu og hún endaði í 32. sæti. Vala Dís Cicero keppti í sömu grein og endaði í 47. sæti. Hún synti á 26,82 sekúndum. Þá syntu Snorri Dagur Einarsson og Hólmar Grétarsson í 50 metra bringusundi og 200 metra flugsundi. Snorri Dagur synti bringusundið á 27,97 sekúndum og varð í 42. sæti en Hólmar varð í 35. sæti í flugsundinu. 200 metrana synti hann á 2 mínútum og 4,68 sekúndum. Síðustu einstaklingsgreinarnar hjá Íslendingunum fara fram á morgun. Símon Elías Statkevicius keppir þá í 50 metra skriðsundi, Guðmundur Leo Rafnsson í 100 metra baksundi, Birgitta Ingólfsdóttir í 50 metra bringusundi og Birnir Freyr Hálfdánarson í 200 metra fjórsundi. RÚV sýnir beint frá mótinu. Kvöldhluti dagsins í dag hefst klukkan 16:25 en keppni í fyrramálið hefst klukkan 7:30.