Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

„Verðbólga áfram tregbreytanleg næstu mánuði“

Read Full Article →

Landsbankinn spáir 0,25 prósentustiga stýrivaxtahækkun í vaxtaákvörðun Seðlabankans í næstu viku. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir verðbólgu enn háa og að verðbólguhorfur hafi versnað. Við þær aðstæður sé hætta á því að verðbólga festist í sessi. Seðlabankinn geti beitt stýrivaxtahækkun til að draga úr fjárfestingum og hægja á hagkerfinu. „Það þarf að passa sig að hækka ekki um of, keyra hagkerfið í kreppu eða eitthvað slíkt. Ég tel ekki hættu á að slíkt gerist núna og ég held að Seðlabankinn muni vera sammála því og líta á sem svo að hann geti hækkað stýrivexti í næstu viku og þannig reynt að koma verðbólgu og sérstaklega verðbólguvæntingum niður áður en aðilar vinnumarkaðarins þurfa að setjast niður og ráða ráðum,“ sagði Una í sjónvarpsfréttum. Aðalhagfræðingur Landsbankans spáir aukinni verðbólgu og 25 punkta stýrivaxtahækkun í næstu viku. Hún segir að þættir bæði erlendis frá og innanlands geri verðbólgu áfram „tregbreytanlega“ næstu mánuði. Spáir verðbólguhækkun Auk stýrivaxtahækkunar spáir Landsbankinn verðbólguhækkun í ágúst. Að hluta til megi skýra hana með áhrifum sólmyrkvans á verðlag ferðaþjónustu. Það séu þó hækkanir sem gangi strax til baka. „En svo eru aðrir þættir. Við sjáum gjaldhækkanir hjá hinu opinbera, í háskólum og á heilsugæslum sem munu koma til með að auka verðbólgu. Svo mun afslátturinn á virðisaukaskatti á eldsneyti falla úr gildi og við erum enn með miklar olíuverðshækkanir erlendis frá. Saman mun þetta verða til þess að verðbólga verður áfram svolítið tregbreytanleg yfir 5 prósentum næstu mánuði,“ segir Una.

Share this article