Gróska ehf., félagið sem á Grósku við Bjargargötu 1 í Vatnsmýrinni, skilaði 605 milljóna króna hagnaði á árinu 2025 samkvæmt ársreikningi félagsins. Rekstrartekjur námu 908 milljónum króna og byggja að langmestu leyti á leigutekjum, auk minni hluta veltutengdra samninga. Afkoman litast þó ekki síst af þróun fasteignamats en félagið bókfærði 971 milljónar króna hækkun á virði fjárfestingareigna á árinu. Sú breyting vegur þungt í heildarniðurstöðunni, enda eru fjárfestingareignir langstærsti eignaliður Grósku og voru metnar á 14,3 milljarða króna í lok árs. Á móti þessari jákvæðu matsþróun vógu fjármagnsgjöld áfram þungt, líkt og tíðkast hjá félögum þar sem stór hluti rekstursins byggir á eignahaldi og skuldsetningu. Árið 2025 var jafnframt stórt umbreytingarár í eignarhaldi Grósku. Í febrúar 2025 upplýsti fasteignafélagið Heimar kauphöllina um að samkomulag hefði náðst um helstu skilmála um kaup á öllu hlutafé Grósku ehf. og Gróðurhússins ehf. og að seljendur myndu verða meðal stærstu hluthafa Heima eftir viðskiptin. Í júní 2025 var síðan tilkynnt að kaupunum hefði verið lokið og uppgjör farið fram með útgáfu nýrra hluta í Heimum. Sjá einnig Verða stærstu hluthafar Heima eftir sölu á Grósku Samkvæmt fréttatilkynningu í febrúar var heildarvirði viðskiptanna metið 13,85 milljarðar króna og gert ráð fyrir að uppgjör færi alfarið fram með útgáfu og afhendingu 258 milljóna nýrra hluta í Heimum, sem jafngiltu um 12,5% hlut í félaginu, metið á um 10 milljarða króna á þeim tíma. Sjá einnig Omega kaupir hlut Björgólfs í Heimum Við lokafrágang kaupanna í júní kom fram að sömu 258 milljónir nýrra hluta hefðu verið afhentar seljendum og að markaðsvirði þeirra væri um 9,5 milljarðar króna miðað við gengi heima. Þá var jafnframt greint frá því að fjárfestingarfélagið Omega, í eigu Andra Sveinssonar og Birgis Más Ragnarssonar, myndi kaupa hlut Björgólfs Thors Björgólfssonar í Heimum og verða stærsti hluthafi félagsins með 12,5% hlut. Í ársreikningi Grósku endurspeglast þessi breyting en hluthafar voru sex í ársbyrjun en einn í árslok, og í árslok er allt hlutaféð í eigu Heima hf.