Skel fjárfestingafélag tapaði 384 milljónum króna á fyrri helmingi ársins 2026, samanborið við 559 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Tekjur af fjárfestingastarfsemi námu 466 milljónum króna, sem er aukning úr 311 milljónum króna árið áður. Í Kauphallartilkynningu félagsins kemur fram að rekstrarhagnaður tímabilsins hafi verið 132 milljónir króna á tímabilinu, samanborið við 64 milljóna króna tap árið áður. Fjármagnsgjöld námu 663 milljónum króna á tímabilinu. Afkoma skráðra eigna var neikvæð um 400 milljónir króna en óskráðra jákvæð um 648 milljónir króna. „Þróun lykileigna Skel á fyrri árshelmingi hefur verið góð. Heildarávöxtun verðbréfa var viðunandi sérstaklega í ljósi þróunar á eignamörkuðum.“ segir Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason , forstjóri. Ásgeir segir hátt vaxtastig skapa þrýsting á verðmat eigna og að viðvarandi verðbólga og háir vextir hafi verið sérkenni í umhverfi fyrirtækja hér á landi undanfarin misseri. Færa niður afkomuspá Dranga Rekstur Dranga var undir áætlun á fyrri árshelmingi, einkum vegna matvöruhlutans og meiri fjárfestinga en gert hafði verið ráð fyrir. Sala var þó í takt við áætlanir og félagið segir skýr merki um viðsnúning í rekstrinum. Sala í endurbættum Nettó-verslunum á höfuðborgarsvæðinu jókst um 16% og afgreiðslum fjölgaði um 26%. Þá hafa fyrstu SPAR-verslanirnar fengið góðar viðtökur; sala þar jókst um 12%, afgreiðslum um 31% og selt magn um 44% frá fyrra ári. Sala Lyfjavals var jafnframt yfir áætlun og selt magn jókst um 17%. Afkoma eldsneytissölu Orkunnar var hins vegar undir áætlun vegna mikilla sveiflna á olíumörkuðum. Drangar gera nú ráð fyrir að EBITDA ársins verði um 6,5 milljarðar króna, en fyrri áætlun hljóðaði upp á 8,3 milljarða. Meðal stærstu viðskipta SKEL á fyrri árshelmingi var sala á öllu hlutafé í Gallon til Styrkáss. Viðskiptunum lauk 13. maí og nam umsamið heildarvirði Gallon 2,9 milljörðum króna. Samhliða viðskiptunum greiddi SKEL upp 1,3 milljarða króna lán sem Gallon hafði veitt félaginu og var hluti kaupverðsins greiddur með hlutum í Styrkási. SKEL seldi jafnframt 3,4% hlut í Styrkási á tímabilinu og átti 32,1% hlut í félaginu í lok júní. Hlutur félagsins í Styrkás var bókfærður á rúma 10 milljarða króna í lok tímabilsins. Stærsta einstaka óskráða eign félagsins var 60,8% hlutur í Dröngum sem var bókfærður á 17,3 milljarða króna. Sjá einnig Styrkás lýkur kaupum á Gallon