Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjölmiðlar Sýnar reknir með 463 milljóna tapi

Read Full Article →

Sýn hf. tapaði 633 milljónum króna fyrir skatt á fyrri árshelmingi samanborið við 652 milljóna króna tap í fyrra. Afkoman batnar um 19 milljónir króna. Tekjur námu 11.020 milljónum króna og jukust um 3,2%. Leiðrétt fyrir Sendafélaginu, sem varð hlutdeildarfélag í árslok 2025, nam vöxturinn 6% að sögn félagsins. Batinn skilar sér ekki niður rekstrarreikninginn. Afskriftir hækkuðu um 443 milljónir króna og námu 2.445 milljónum. Þar munar mest um afskriftir sýningarrétta, sem fóru úr 847 milljónum króna í 1.432 milljónir. Fjárfesting í sýningarréttum nam 1.128 milljónum króna og hækkaði um 56,7% milli ára. Afskriftirnar eru 304 milljónum hærri en fjárfestingin og bókfært verð sýningarrétta lækkaði úr 2.451 milljón króna í 2.147 milljónir. Fjölmiðlunin ber vöxtinn Rekstrarafkoma fyrir afskriftir að frádregnum hreinum leigugreiðslum (EBITDAaL) fjölmiðla fór úr 715 milljónum króna í 1.279 milljónir. EBITDAaL fjarskipta lækkaði úr 580 milljónum í 559 milljónir og tekjur fjarskipta stóðu í stað. Fjölmiðlunin tekur til sín 79% af fjárfestingum félagsins, 1.211 milljónir króna af 1.528 milljónum. Þegar fjárfestingar eru dregnar frá EBITDAaL stendur eftir 68 milljóna króna afgangur í fjölmiðlun á móti 242 milljónum í fjarskiptum. Hvorug einingin stendur undir sér Sýn birtir ekki afkomu starfsþátta neðar en að EBITDAaL í árshlutareikningnum. Ef þessum liðum er skipt niður kemur afkoma hvors í ljós. Afskriftir sýningarrétta, 1.432 milljónir króna, tilheyra fjölmiðlahlutanum. Leigutengdir liðir skiptast eftir leigukostnaði starfsþáttanna sem fram koma í skýringum, aðrar afskriftir eftir fjárfestingum utan sýningarrétta og afgangurinn eftir tekjum. Niðurstaðan er sú að hvorug einingin skilar afgangi. Fjölmiðlunin tapar um 463 milljónum króna fyrir skatt og fjarskiptin um 170 milljónum. Í fyrra var tap fjölmiðlunar um 455 milljónir og fjarskipta um 197 milljónir. Tap fjölmiðlunar eykst vegna hærri vaxtakostnaðar. Engin virðisrýrnun þrátt fyrir taprekstur Engin virðisrýrnun var færð á árinu 2025 þótt báðar einingar væru reknar með tapi eftir allan kostnað. Liðurinn er núll á móti 1.161 milljón króna árið áður. Viðskiptavild stendur því óbreytt í 7.818 milljónum króna, þar af 2.108 milljónir vegna miðla, og sama fjárhæð stendur enn 30. júní 2026. Söluhagnaður ber fimm ára tímabilið uppi Á síðustu tuttugu ársfjórðungum nemur uppsafnaður bókfærður hagnaður Sýnar 2.788 milljónum króna. Af þeirri fjárhæð koma 4.197 milljónir frá tveimur eignasölum, söluhagnaði af óvirkum innviðum á fjórða fjórðungi 2021 og af stofnnetinu á fjórða fjórðungi 2023. Að þeim frátöldum er uppsafnaður rekstur tímabilsins neikvæður um 1.409 milljónir króna. Frá og með fyrsta ársfjórðungi 2024 hefur félagið skilað tapi í átta af tíu fjórðungum og uppsafnað tap þess tímabils nemur 2.657 milljónum króna. Tölurnar eru birtar eins og þær stóðu á hverjum tíma og hafa ekki verið samræmdar afturvirkt. Fram til 2025 er um samstæðu að ræða en árshlutareikningur 2026 tekur til félagsins eins.

Share this article