Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hátt í 200 íslenskir þátttakendur á varnaræfingunni Norður-Víkingur

Read Full Article →

Tvíhliða varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands, Norður-Víkingur 2026, verður haldin á Íslandi og hafsvæðinu í kringum landið dagana 22. ágúst til 3. september. Æfingin er haldin hér á landi að jafnaði annað hvert ár. „Meginmarkmið æfingarinnar er að æfa varnir Íslands, þar með taldar varnir mikilvægra innviða, sjóleiðirnar umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins (NATO),“ segir í tilkynningu utanríkisráðuneytisins . „Jafnframt verður æft hvernig mæta skuli hefðbundinni hernaðarógn á landi, sjó og í lofti ásamt fjölþáttaógnum og skemmdarverkum.“ Æfa viðbragð við virkjun 5. greinarinnar Æfingin verður tvískipt. Viðbragð Bandaríkjanna við vaxandi ógn á grundvelli varnarsamningsins verður æft sem og viðbrögð NATO eftir virkjun 5. greinar bandalagsins. 5. greinin kveður á um að árás á eitt aðildarríki jafngildi árás á þau öll. Áætlað er að um 150-200 íslenskir þátttakendur komi að æfingunni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og NATO. Alexus G. Grynkewich yfirhershöfðingi NATO, sem er jafnframt yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu, verður viðstaddur opnunarathöfn æfingarinnar 18. ágúst. Grynkewich hyggst hitta bæði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í heimsókn sinni til landsins. Matthew Whitaker, fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá NATO, sækir Ísland einnig heim af þessu tilefni.

Share this article