Varnaræfingunni Norður-Víkingi 2026 lauk í vikunni en æfingin er að jafnaði haldin annað hvert ár hér á landi. Varnir Íslands voru æfðar með aðgerðum á sjó, landi og í lofti ásamt varnaráætlunum og viðbragði Atlantshafsbandalagsins, undir stjórn herstjórnarinnar í Norfolk. Greint er frá lokum Norður-Víkings á vef Stjórnarráðs Íslands . Æfingin byggir á tvíhliða varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna. Auk landanna tók liðsafli frá Belgíu, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Kanada, Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi þátt í æfingunni. Fjölmörg skip úr fastaflota Atlantshafsbandalagsins voru notuð í æfingunni sem áætlað er að um 1.200 manns hafi tekið þátt í. Margir innlendir viðbragðsaðilar komu að undirbúningi og framkvæmd æfingarinnar, þar á meðal Landhelgisgæsla Íslands, varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og heilbrigðisstofnanir. Á vef Stjórnarráðsins segir að æfðar hafi verið varnir mikilvægra innviða, eftirlit og varnir á sjóleiðum á Norður-Atlantshafi og samhæfing milli íslenskra viðbragðsaðila og erlends herliðs „Æfingin er mikilvægur liður í að treysta og styrkja viðbragð og varnir, þar sem reynir að gagnkvæmar varnarskuldbindingar en gefur okkur hér heima og erlendum liðsafla færi á að æfa saman og kynnast þeim aðstæðum sem hér eru til staðar,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.