Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vilja efla innviði í Keflavík og endurnýja ratsjárstöðvar

Read Full Article →

Æfingin er kölluð Norður-Víkingur og er haldin á Íslandi annað hvert ár að jafnaði. Æfingin verður tvískipt. Bandaríkin ætla að æfa viðbragð við vaxandi ógn á grundvelli varnarsamningsins og viðbrögð eftir virkjun fimmtu greinar bandalagsins. Samkvæmt henni jafngildir árás á eitt aðildarríki árás á þau öll. Auk Íslendinga og Bandaríkjamanna taka Norðmenn, Svíar, Danir, Finnar, Þjóðverjar, Frakkar og Kanadamenn þátt í æfingunni. „Þetta er svo mikilvægt, við lifum á víðsjárverðum tímum. Enginn okkar getur gert þetta á eigin spýtur,“ segir Alexus G. Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins. Grynkewich segir sérstaklega mikilvægt að leggja áherslu á norðurskautið – þar sem andstæðingar NATO geri sig gildandi. „Í dag eru meint rannsóknarskip Rússlands og Kína í sameiginlegum eftirlitsferðum. Við vitum öll að þau eru ekki hér til að telja lunda,“ segir Alexus G. Grynkewich. Sameiginleg varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands um varnir hér og á Norður-Atlantshafinu hófst í dag. Yfirhershöfðingi NATO segist vilja efla innviði á Keflavík og í höfnum. Grynkewich segir að það sé enn til umræðu nákvæmlega hvers konar langtímauppbyggingu eigi að ráðast í hér, eins og hann og forsætisráðherra kynntu eftir fund sinn í gær. „Að halda áfram að fjárfesta hérna, fjárfesta í fjarskiptainnviðum, skynjurum og hafnarinnviðum sem gætu komið bandalaginu að gagni í framtíðinni.“ Hvers konar uppbyggingu erum þið að tala um? „Efla innviði í Keflavík. Við sjáum líka á næstu árum að það þarf að endurnýja ratsjárstöðvarnar, þessar fjórar stóru mikilvægu sem eru á landinu. Þetta þurfum við að gera í samvinnu við NATÓ og bandamenn okkar. Við erum að efla höfnina í Helguvík,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Það sem við erum að gera er mjög verðmætt og í fremstu röð, en það þýðir auknar fjárfestingar í varnar- og öryggismálum,“ bætir hún við.

Share this article