Innlent | Sunnudagsblað | 15.8.2026 | 8:00 Úr ólíkum áttum: Agi Sólveig Anna Jónsdóttir mbl.is/Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Pistill Sólveigar Önnu Jónsdóttur úr Sunnudagsblaðinu Fyrir skemmstu var þingmaður Samfylkingarinnar og einn helsti talsmaður inngöngu Íslands í Evrópusambandið í Spursmálum, ásamt bæjarstjóra Kópavogs. Um ESB og flest annað voru þau ósammála, utan eitt - meiri aga þarf á vinnumarkaði. Þegar stjórnmálafólk eins og þau, ásamt fjármálaráðherra, framkvæmdastjóra SA og öðrum fyrirmennum, eru sammála er tímabært fyrir verkafólk að hafa verulegar áhyggjur. Umræða um ónýtt vinnumarkaðsmódel er gagnleg fyrir borgaraleg öfl. Í stað þess að ræða tilveruskilyrði vinnuaflsins, stéttaskiptingu og misskiptingu er athyglinni beint að hegðun verkafólks; launakröfur eru of miklar og verkföll of tíð. Málað er með gríðarbreiðum pensli þannig að upp dregst óskýr mynd án mikilvægra atriða; hverjir njóta gæða samfélagsins og hverjir ekki? Til að veikja stéttavitund og gera mótspyrnu tortryggilega eru eðlilegar kröfur um mannsæmandi kjör sagðar óábyrgar og þau sem þær setja fram hættuleg. Valdafólk sameinast í mikilvægasta verkefninu; að færa kjarasamningagerð af lýðræðislegum vettvangi vinnuaflsins inn í sali menntastéttanna, þar sem auðvald og millistétt koma saman við borð þjóðhagsráðs – þar sem fulltrúar verkafólks sjást aldrei. Við borðið skal vinna að „samkeppnishæfni“ landsins, m.a. með því að semja ávallt um prósentuhækkanir. Þrátt fyrir að vinna verkafólks sé grundvöllur verðmætasköpunar þjóðfélagsins kemur það hvergi nærri samningagerðinni. Nú er svo komið að vinnuafl Íslands þarf að viðurkenna að vinnumarkaðsmódel okkar er besta, og á vorum dögum eina, vörnin. Stjórnmálin hafa yfirgefið verkafólk og berjast um hylli vel settrar millistéttar og þeirra sem enn hærra eru í efnahagslegu stigveldi þjóðfélagsins – afstaða vinnuaflsins er ekki lengur réttmæt og skiljanleg heldur stærsta vandamál samtímans. Aðeins með því að standa herská vörð um réttindi okkar á vinnumarkaði og því að koma saman í róttækri stéttabaráttu getum við knúið á um að kröfur okkar séu virtar. Á bls. 30 í nýrri skýrslu kjaratölfræðinefndar kemur fram að ASÍ og SA áætli að 58% verkafólks á Íslandi sé á taxtalaunum. Í heimi Dags B. Eggertssonar og Ásdísar Kristjánsdóttur hefur þetta fólk það of gott og öflugri tól þarf til að halda því niðri. Lægri raunlaun, viðvarandi atvinnuleysi, takmarkað velferðarkerfi; í nafni skynsemi og ábyrgrar hagstjórnar skal vinnuaflið sætta sig við niðurlægingu og jaðarsetningu. Breytinga er þörf á Íslandi - hjá fólki eins og Degi og Ásdísi og stéttsystkinum þeirra. Þau eiga að gefa eftir hálaunakröfurnar og láta af sjálftökunni. Þau þurfa að viðurkenna að verkafólk er ómissandi. Gott samfélag og öflugt velferðarkerfi þurfa vissulega aga – um hann skal krefja auðvald og forréttindahópa. Þannig má vinna markvisst að jafnvægi og styrk ri hagstjórn, þjóðfélaginu til hagsbóta. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Óvænt skref hjá Steven Gerrard Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Aðsend grein: Tökum enga áhættu með EES-samninginn! Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnvöld og fyrirtæki vanrækt skyldur sínar Flúðu skýjahrönnina í almyrkvaleit „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Fimm ára landrisi í Öskju virðist lokið Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Kirkja afhelguð og fer í fóstur Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna Nýjast á mbl.is » Aðsend grein: Sjálfstraust Íslands og hræðslupólitíkin fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um ESB Úr ólíkum áttum: Agi Óvænt skref hjá Steven Gerrard Óvissa um framtíð Gallerý Pizza eftir 30 ár á sama stað Aðsend grein: Tökum enga áhættu með EES-samninginn! Umræðan Gullinbrú og einkagoðsögnin Snýst um að styrkja fullveldið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Verið vel undirbúin og semjið af alvöru“ Þurfa að ákveða hvað þeir vilja og byggja bandalög Vændiskaupabannið hingað til vindhögg Var afhentur albönskum yfirvöldum Mest lesið Í gær Í vikunni Fannst eftir að hafa verið týndur í tvö ár Ræddi við CNN í beinni frá Húsdýragarðinum „Ég skulda Íslandi meira en Ísland mér“ Kirkja afhelguð og fer í fóstur Segja kostnaðinn fimmfalt hærri Reynir aftur við fljótið um helgina Var afhentur albönskum yfirvöldum Sýn sektað um tvær milljónir Nú má heita Blóm og Lerkir Gripinn með mikið magn af fíkniefnum Vilja ekki verksmiðjubú í dalinn Selur fyrir milljarða á TikTok Lækka gatnagerðargjöld um 90% Sýn sektað um tvær milljónir Var afhentur albönskum yfirvöldum Samúel hótað Sigríður leiðir nýja nefnd sem Kristrún skipaði Íslendingur í hörðum slag hjá Piers Morgan Svaf af sér milljónasímtalið; tvö unnu 5,9 milljónir Fiskurinn hvarf í skammnættinu Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Rannsaka manndráp á Kársnesi Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Eldur kviknaði í Bónus: „Hefði ekki mátt loga lengi“ Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Mikill viðbúnaður lögreglu við verslunarkjarna