Leiguflugið ehf. (Air Broker Iceland), sem sérhæfir sig í útleigu flugvéla og þyrlna, velti 398 milljónum króna árið 2025, samanborið við 110 milljónir árið áður. Félagið, sem var stofnað í lok árs 2023, hagnaðist um 18,4 milljónir króna í fyrra, samanborið við 29 milljóna króna tap árið 2024. Leiguflugið var stofnað af Ásgeiri Erni Þorsteinssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Ernis, og Einari Hermannssyni. Í nóvember 2024 lauk Leiguflugið hlutafjáraukningu með þátttöku FnFI ehf. og Vesturflatar ehf. sem eignast 49% í félaginu. FnFI ehf. er félag í eigu hjónanna Guðmundar Fertrams Sigurjónssonar, stofnanda og forstjóra Kerecis, og Fanneyjar Kr. Hermannsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins. Vesturflöt ehf. er félag í eigu hjónanna Guðmundar Óskarssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Icelandair og núverandi framkvæmdastjóra vöru- og markaðsmála hjá Kerecis, og Kristínar Þorleifsdóttur. Sjá einnig Guðmundur Fertram og Fanney fjárfesta í Leigufluginu Ásgeir Örn, framkvæmdastjóri Leiguflugsins, sagði við það tilefni að markaðurinn fyrir flug á Íslandi væri að taka miklum breytingum. „Við sjáum aukna eftirspurn á ýmsum sviðum, t.d. í sjúkraflugi þar sem við bjóðum sérútbúnar sjúkraþotur sem tryggja betri þjónustu við sjúklinga, betri vinnuaðstöðu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og stytta verulega sjúkraflugtímann frá því sem Íslendingar eru vanir. Opnun nýrra flugvalla á Grænlandi opnar líka ýmis tækifæri í auknum flugsamgöngum milli þjóðanna.“ Hlutafé félagsins var aukið um samtals 45 milljónir króna á árunum 2024 og 2025. Eignir Leiguflugsins námu 127 milljónum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 34 milljónir. Stofnendurnir Ásgeir Örn og Einar áttu itthvorn 25,5% hlut í félaginu í lok síðasta árs. FNFI ehf., félag Guðmundar Fertrams og Fanneyjar, átti 48,6% hlut og Vesturflöt árri 0,4%. Lykiltölur / Leiguflugið ehf. 2025 2024 Rekstrartekjur 380 110 Rekstrargjöld 379 137 EBIT 19 -27 Afkoma e. skatta 18 -29 Eignir 127 3 Eigið fé 34 1 Ársverk 3 2 - í milljónum króna