Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild?

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.8.2026 | 8:00 Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Albert Þór Jónsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Fjármálalæsi ríkisstjórnar Íslands er takmarkað því ferðalag hennar inn í tæknilega gjaldþrota Evrópu og ESB er feigðarför. Ísland er eitt af þremur löndum heims með mestu lífsgæðin og eiga þau það sameiginlegt að vera ekki í ESB eða með evru. „Nei“ 29. ágúst er eina rétta svarið til að forðast stórslys sem mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir Ísland. 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun mun raungerast enda Evrópa og ESB á hraðri niðurleið. Sem dæmi var hlutfall Þýskalands af þjóðarframleiðslu heimsins 8,29% 1995 en var komið í 4,17% árið 2025. Á sama tíma jókst sama hlutfall hjá Kína úr 2,36% árið 1995 í 16,92% árið 2025. Bandaríkin tróna á toppnum með 26,84%. Stærstu lönd ESB, Þýskaland og Frakkland, eru með um 7% af þjóðarframleiðslu heimsins og fer hríðlækkandi. Með Kópavogsfundinum 28. júlí 1662 minnkaði vald Alþingis og konungur tók í ríkari mæli til sín löggjafarvaldið og styrkur embættismanna konungs á Bessastöðum jókst en tilgangurinn var að fá Íslendinga til að samþykkja erfðaeinveldi. Fyrir þann tíma var einveldið þannig að konungur var kjörinn af helstu fulltrúum ríkisins en yrði síðan ekki löglega konungur fyrr en fulltrúar allra þjóðanna sem tilheyrðu Danaveldi hefðu samþykkt samninginn. Henrik Bjelke aðmíráll, fulltrúi konungs, kom til Íslands á fund í Kópavogi til þess að fá íslenska höfðingja til að undirrita erfðahyllinguna. Samningurinn var síðan kallaður Kópavogssamningurinn og afleiðingarnar voru þær að lög sem konungur setti hlutu sjálfkrafa gildi án sérstaks samþykkis Alþingis Íslendinga. Þessi samningur var gerður í öllum þjóðum sem tilheyrðu Danaveldi og samkomulag sameiginlega kallaðist einveldissamþykktin. Erfðaeinveldi gilti allt til ársins 1874 eða í 212 ár þegar Íslendingar fengu stjórnarskrá. Kópavogsfundurinn árið 1662 var sögulegur viðburður þar sem Íslendingar neyddust til að samþykkja erfðaeinveldi Danakonungs. Halldór Laxness gerir þessum atburðum og aðdraganda þeirra góð skil í meistaraverki sínu, Íslandsklukkunni, þar sem Íslendingar undirrituðu einveldissamþykktina undir vopnavaldi danskra stjórnvalda. Skáldsagan sýnir hvernig íslenska þjóðin og menning hennar átti undir högg að sækja á 17. öld, og Kópavogsfundurinn stendur þar sem táknmynd þeirrar valdatöku og yfirgangs sem íslensk alþýða þurfti að þola. Laxness gagnrýndi oftar en nokkur annar íslenskur rithöfundur undirgefni þjóðarinnar við erlent vald. Nóbelsskáldið Halldór E. Laxness komst vel að orði fyrir um 90 árum og gott að minnast þess þegar margir leggja hart að sér að kyssa vönd ESB í sakleysi sínu eða fáfræði. Þeir kjósa að gleyma baráttu og fórnfýsi forfeðra okkar til að koma Íslandi á þann stað þar sem það er í dag, en Ísland er, eins og alkunna er, eitt ríkasta land heims. „Það er álitið að fáar þjóðir hafi þolað kúgun og yfirgang af meiri kurteisi en Íslendingar. Um aldaraðir alt fram á þennan dag lifðu þeir í skilningsríkri sáttfýsi við kúgun, án þess að gera nokkru sinni tilraun til uppreisnar. Eingri þjóð var byltingarhugtakið jafn hulið. Ævinlega voru Íslendingar reiðubúnir að kyssa vöndinn er sárast beit og trúa því að kaldrifjaðasti böðullinn væri sönnust hjálp þeirra og öruggasta skjól.“ (Halldór K. Laxness 1936) Miðstýring og undirgefni hafa ekki gefist þjóðum vel, það geta fleiri þjóðir Evrópu vitnað um. Ísland á að stefna á viðskipti við leiðtogaþjóðir heimsins á jafningjagrundvelli og hafa hagsmuni landsins alltaf í heiðri. Sjálfstæðið er mesta verðmæti Íslands. Staðfesta, stolt og framsýni eru þeir þættir sem munu skapa tækifæri Íslands í samskiptum við aðrar þjóðir. Íslenskir stjórnmálamenn og embættismenn eiga að hafa hagsmuni Íslands og Íslendinga í fyrsta sæti í öllum mikilvægum málum og sérstaklega þeim sem snúa að stefnumarkandi málum sem varða verðmætar auðlindir landsins. Áfram Ísland! Albert Þór Jónsson, viðskiptafræðingur (cand. oecon.). Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Tilbúin til samtals við stjórnvöld“ Sá besti á HM fer til Katalóníu Aðsend grein: Dugar sæti við borðið? Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Aðsend grein: Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Umræðan Eitt lag enn Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur „Ávísun á leigumorðingja“ „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Mest lesið Í gær Í vikunni Segir mannát hreinan uppspuna Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa „Reyðarjárn“ úr langreyði Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Hiti allt að 20 stigum Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Nýjast á mbl.is » „Tilbúin til samtals við stjórnvöld“ Sá besti á HM fer til Katalóníu Aðsend grein: Dugar sæti við borðið? Aðsend grein: Er eftirspurn eftir 40% atvinnuleysi og 50% kaupmáttarrýrnun með ESB-aðild? Aðsend grein: Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Umræðan Eitt lag enn Persónuleg reynsla Steingríms J. af ESB-viðræðum talar skýru máli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Hiti allt að 20 stigum Dregur úr æfingum vegna sambandsins við Kim „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Segir mannát hreinan uppspuna Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa „Reyðarjárn“ úr langreyði Tveir skildir eftir í sjálfheldu í Parísarhjólinu Hiti allt að 20 stigum Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ „Ég hef ekki trú á ríkisstjórninni í einu né neinu“ „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Krefur Hafnarfjarðarbæ svara vegna hátíðarinnar Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nærri uppselt á kappræðurnar Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hringdi á lögreglu þegar gesturinn neitaði að fara „Þetta var svo ofboðslega sárt“ Heilsugæsla í nafni Örnu: „Þetta var hennar ósk“ 120 gráða heitt vatn í Bolholti og Engjateig Páll Magnússon tekur við Sprengisandi „Sósíalismi ekki einu sinni möguleiki innan ESB“ Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Svartklæddir menn sáust á hlaupum í götunni Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Nágranni heyrði öskur og kallað var eftir aðstoð Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys

Share this article