Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fjölbreytt dagskrá Menningarnætur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.8.2026 | 17:40 Fjölbreytt dagskrá Menningarnætur Djasskrakkarnir spreyttu sig á vel völdnum lögum í tilefni afmælis Reykjavíkurborgar í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Á Austurvelli í dag mátti sjá Hildi Björnsdóttur borgarstjóra fagna 240 ára afmæli Reykjavíkurborgar í sólinni og fara yfir dagskrá Menningarnætur, sem haldin verður í miðbæ Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Mikið verður um að vera um alla miðborgina á Menningarnótt þar sem íbúar, listafólk og atvinnurekendur taka virkan þátt í hátíðarhöldunum. Fjölbreytt dagskrá hátíðarhalda Menningarnótt verður formlega sett með glæsibrag klukkan 12:30 á Klapparstíg þar sem borgarstjóri setur hátíðina og boðið verður upp á afmælisköku í tilefni afmælis borgarinnar. Dagskráin er fjölbreytt og það ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Meðal viðburða á Menningarnótt verður hreyfilistarviðburður frá Acro Yoga. mbl.is/Eggert Jóhannesson Meðal dagskrárliða í ár eru dansatriði, tískusýning á Ingólfsstræti, hjólabrettaviðburður Skrans, útikaraoke á Steinbryggjunni og listasýning á Listasafni Reykjavíkur. Tónlist verður einnig í forgrunni á hátíðinni en meðal stærri viðburða verður Tónaflóð á Arnarhóli en þar koma Daði Freyr, Páll Óskar, JóiPé og Króli, Árný Margrét og fleiri listamenn fram. Skógræktarfélag Reykjavíkur verður heiðursgestur hátíðarinnar í tilefni af 125 ára afmæli félagsins og boðið verður upp á ilmsturtu, tálgun og ljósmyndasýningu í Ráðhúsinu, svo eitthvað sé nefnt. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri fagnaði 240 ára afmæli Reykjavíkurborgar á Austurvelli í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Víða lokað fyrir umferð Menningarnótt lýkur klukkan 22 með flugeldasýningu. Borgin hvetur gesti til að koma fótgangandi, hjólandi eða með almenningssamgöngum, enda verður víða lokað fyrir akandi umferð í miðborginni. Almennt gilda götulokanir frá klukkan 07.00 að morgni laugardagsins og standa til klukkan 01.00 eftir miðnætti. Strætóskutlur munu aka til og frá bílastæðum við Laugardagshöll um Borgartún að Hallgrímskirkju með viðkomu á Hlemmi frá klukkan 7:30 um morguninn til 23:15 um kvöldið. Í samráði við rafskútufyrirtæki verður aðeins hægt að leggja rafskútum á ákveðnum svæðum í jaðri hátíðarsvæðis Menningarnætur. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Nýtti sér akrein ætlaða strætisvögnum Fjölbreytt dagskrá Menningarnætur Liverpool undirbýr nýtt tilboð Beint: Baráttufundur um sjálfstæði Íslands Rodri tilkynntur hjá Barcelona Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ „Við ætlum að gera meira hér í Keflavík“ Áróðursvél Rússa teygir angana Segir starfsmenn aldrei hafa yfirgefið hjólið Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Tekjur forsetanna á breiðu bili Tilkynntur stolinn og fannst úti í á Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig Nýjast á mbl.is » Nýtti sér akrein ætlaða strætisvögnum Fjölbreytt dagskrá Menningarnætur Liverpool undirbýr nýtt tilboð Beint: Baráttufundur um sjálfstæði Íslands Rodri tilkynntur hjá Barcelona Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Málið komið á borð breskra yfirvalda ESB-skatturinn gæti orðið 90 milljarðar á ári „Einhverjar athugasemdir á pólitíska sviðinu“ „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Vilja láta lækka skyldusparnaðinn „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. Átta læknar með yfir fimm milljónir „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Tekjur forsetanna á breiðu bili Tilkynntur stolinn og fannst úti í á Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig

Share this article