Reykjavík fyllist lífi á morgun þegar Menningarnótt verður haldin hátíðleg. Búist er við um hundrað þúsund gestum í miðborginni þar sem fjölbreyttir viðburðir verða frá morgni til kvölds. Dagurinn hefst snemma hjá þeim rúmlega 15 þúsund hlaupurum sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu, sem verður ræst við Háskóla Íslands. Dagskrá Menningarnætur hefst síðan klukkan 12:30 á Klapparstíg. Þar býður Hildur Björnsdóttir borgarstjóri upp á afmælisköku í tilefni 240 ára afmælis Reykjavíkurborgar. Á Arnarhóli er verið að leggja lokahönd á undirbúning fyrir stórtónleikana Tónaflóð Rásar 2. Þar lýkur dagskrá kvöldsins með flugeldasýningu klukkan 22. Lokað fyrir akandi umferð Miðborgin verður lokuð fyrir akandi umferð frá klukkan sjö í fyrramálið og fram að miðnætti. Strætó mun á sama tíma sinna auknum fjölda farþega og ferja gesti úr öllum hverfum borgarinnar. Markús Vilhjálmsson hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins segir að ferðir verði með töluvert breyttu sniði. „Það verður aukin tíðni á flestum leiðum hérna á höfuðborgarsvæðinu og það verður mikið um lokanir,“ segir Markús. Hann hvetur fólk til að kynna sér lokanirnar á straeto.is og í Klappinu, símaforriti Strætó. Upplýsingar verða einnig aðgengilegar í Google Maps. Sérstök skutlþjónusta verður frá Laugardalshöll að Hallgrímskirkju frá klukkan sjö um morguninn og til 23:15. Þá verður einnig ekið um Njarðargötu á milli sjö og til hádegis til að koma til móts við fólk sem ætlar að fylgjast með Reykjavíkurmaraþoninu. Safnað í Strætó við Sólfarið Um kvöldið verður sérstök áhersla lögð á að koma fólki hratt og örugglega úr miðbænum. Markús segir að klukkan 21:30 verði almennum vegakerfum rofið og vögnum safnað saman á Sæbraut við Sólfarið. „Tæming fer þar fram þar sem ekið er út í öll helstu hverfi, eða öll hverfi, á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Markús. Ókeypis verður í þessa vagna. Lögreglan hefur einnig undirbúið sig fyrir fjölmennið. Kristján Helgi Þráinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir undirbúning hafa staðið yfir síðustu daga. Mikill mannafli fari í að tryggja öryggi á hátíðardegi sem þessum. „Við erum bara nokkuð tilbúnir í að vera til staðar fyrir fólkið í bænum,“ segir Kristján Helgi. Hann leggur áherslu á að Menningarnótt sé fjölskylduhátíð. „Við segjum að fólkið komi saman í bæinn, hafi gaman saman, og endilega fari saman heim,“ segir Kristján. Hann hvetur foreldra og forráðamenn sérstaklega til að skilja börn ekki eftir ein í miðborginni. Menningarnótt er á morgun og fjölbreyttir viðburðir lita mannlíf Reykjavíkurborgar frá morgni til kvölds. Lokað verður fyrir akandi umferð í miðborginni frá sjö um morguninn til miðnættis.