Innlent | mbl | 18.8.2026 | 22:00 „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ Pétur Guðnason og Berglind Ólafsdóttir sem misstu son sinn Elmar í janúar, en í ljós kom að hann var með arfengan sjúkdóm. mbl.is/Eyþór Árnason Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Eftir að Elmar Pétursson lést í janúar síðastliðnum, aðeins eins og hálfs árs, kom í ljós að hann hafði verið með arfgengan hjartagalla, langt QT-heilkenni (long QT syndrome type 1) sem getur valdið hjartsláttartruflunum og skyndidauða. Auðvelt hefði verið að greina heilkennið og halda í skefjum, ef verkferlar hefðu verið öðruvísi. Sjö mánuðir eru síðan Elmar lést en Berglind Ólafsdóttir, móðir hans, segir ótrúlegt að svo langur tími sé liðinn. Þeim finnst ennþá vera janúar, enda skilja þau ekki hvernig lífið getur yfirhöfuð haldið áfram. Frétt af mbl.is Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa „Maður veit ekki hver maður er án barnsins síns. Það er svo ógeðslega erfitt að vakna á hverjum morgni. Í smástund heldur maður að allt sé í lagi en svo dynur þetta allt yfir mann, að hann sé dáinn og að ég fái hann aldrei aftur,“ segir Berglind. „Það er svo erfitt að horfa til framtíðar án hans.“ Pétur Guðnason, faðir Elmars, tekur undir með Berglindi. Segir Elmar skilja eftir sig mikið tómarúm. „Hann var svo ungur. Það var enn svo mikil umönnun í kringum hann, að sinna honum, við að gefa að borða, skipta á honum, svæfa hann, það var grátur og hlátur,“ segir hann. „Heimilið okkar var fullt af lífi. Það voru litlar táslur þrammandi um allt, öskur og grátur og hlátur. Svo kemur maður heim og það er bara þögn. Það er þögn alla daga,“ bætir Berglind við. Elmar var aðeins eins og hálfs árs þegar hann lést. Ljósmynd/Aðsend Hefur upplifað gremju og reiði Pétur segir í raun mörg áföll hafa dunið á þeim frá því þau voru með Elmar meðvitundarlausan í höndunum. Þegar þau þurftu að taka hann úr sambandi og að þurfa að horfa á hann deyja. Og að meðtaka þá staðreynd að hann sé dáinn. „Þetta gerðist svo ótrúlega hratt, frá því að vera hlæjandi og dansandi og að vera kominn nokkrum tímum síðar upp á gjörgæslu. Allt þetta ferli, að horfa upp á hann í þessu ástandi, endurlífgunin, sjúkrabílarnir og lögreglubílarnir og spítalavistin, þar til yfir lýkur. Það er mjög erfitt að vinna úr því. Svo bætist bara ofan á harmleikinn. Ég er greindur með þetta og bróðir hans. Þetta er súrrealísk upplifun.“ Pétur hefur upplifað mikla gremju og reiði yfir því að þetta hafi þurft að fara svona. Yfir því að sjúkdómurinn hafi þurft að koma í ljós með fráfalli Elmars. Þau fengu sálgæslu á spítalanum og hafa hitt sálfræðing og prest, en finnst það ekki hafa hjálpað mikið, enda lítið sem hjálpar í þessum aðstæðum. Samtöl við fagfólk færa þeim ekki Elmar aftur. Viðtalið er hægt að lesa í heild á bls 10-11 í mánudagsblaði Morgunblaðsins og áskrifendur geta nálgast það hér: Frétt af mbl.is „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Hér er hægt að heita á hlaupara sem safna áheitum fyrir Minningarsjóð Elmars Péturssonar í Reykjavíkurmaraþoninu næstkomandi laugardag. Minningarsjóður Elmars Péturssonar Pétur Guðnason hleypur fyrir Minningarsjóð Elmars Péturssonar Úlfur Elmar Pétursson hleypur fyrir Minningarsjóð Elmars Péturssonar Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lést í bílslysi aðeins 57 ára Ruddi brautina með Prius „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ Jarðskjálftinn olli 9,57 milljarða dala tjóni Vill fara úr ensku úrvalsdeildinni Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ „Sterk fælingarskilaboð“ Segist ekki hafa farið með: „Leist ekki á blikuna“ Aukinn verkefnaskortur hjá verktökum og hönnuðum Mest lesið Í gær Í vikunni Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Tekjur forsetanna á breiðu bili „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig Nýjast á mbl.is » Lést í bílslysi aðeins 57 ára Ruddi brautina með Prius „Það voru litlar táslur þrammandi um allt“ Jarðskjálftinn olli 9,57 milljarða dala tjóni Vill fara úr ensku úrvalsdeildinni Umræðan Börn og sala áfengis á netinu Feitu embættin hjá Evrópusambandinu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekkert hægt að segja um orsök skemmdanna Málið komið á borð breskra yfirvalda Aðalmeðferð heldur áfram: Þrír gefa skýrslu Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Mest lesið Í gær Í vikunni Átta læknar með yfir fimm milljónir Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Vísað úr landi eftir að hafa verið stöðvuð í akstri Alma Möller með hæstu tekjurnar á Alþingi „Við fáum hann aldrei aftur til okkar“ Verð á máltíðum hækki í 1.900 kr. „Ófremdarástand“ á íbúðamarkaði Tekjur forsetanna á breiðu bili „Númer tvö, við sjálfsmorðum hann“ Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Tveir skildir eftir í sjálfheldu í parísarhjólinu Andlát: Bogi Ísak Nilsson Segir mannát hreinan uppspuna Sögð hafa ráðist inn og beitt mann miklu ofbeldi „Blessaður, er í miðri frelsissviptingu“ Útlendingastofnun tók fram fyrir hendur lögreglu „Reyðarjárn“ úr langreyði Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Málið komið á borð breskra yfirvalda Skátaflokki vísað af móti Hafa þegar borgað átta milljónir og ná ekki í neinn „Þetta sýnir frekar sorglega sögu“ Viðbúnaður vegna líkfundar við Austurbæjarskóla Sá þriðji færður fyrir dómara Erlendir sérfræðingar kallaðir til vegna líkamsleifanna Maðurinn sem lést var íslenskur Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Heimilar krufningu á líki óþekkts manns eftir slys Inga Sæland minnkar við sig