Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslendingar eyða sífellt meira erlendis

Read Full Article →

Nýjar tölur Landsbankans sýna að neysla Íslendinga færist í auknum mæli úr landi, en ríflega fjórðungur af allri neyslu landsmanna fór fram erlendis í júlí síðastliðnum. Hlutfallið var komið í 26,5% og hefur það aldrei mælst hærra. Alls jókst kortavelta Íslendinga erlendis um 8,5% að raunvirði á milli ára í júlí. Þessi aukna eyðsla erlendis er hluti af stærri þróun, en frá áramótum hefur mánaðarleg kortavelta landsmanna erlendis aukist um að jafnaði 14% að meðaltali. Á sama tíma hefur kortavelta innanlands dregist saman næstum alla mánuði ársins. Aukin erlend netverslun vegur þungt Færri ferðamenn sóttu Ísland heim í júlí en á sama tíma í fyrra, eða sem nemur 3,1% fækkun samkvæmt tölum Ferðamálastofu. Þrátt fyrir það jókst eyðsla erlendra gesta hér á landi um 3,9% á föstu gengi, sem þýðir að hver ferðamaður eyddi aðeins meira en áður. Þegar tekið er tillit til verðbólgu nam aukningin hins vegar einungis 0,8%, sem bendir til þess að gestir hafi greitt hærri upphæðir en fengið svipað eða lítið eitt meira fyrir peninginn. Áhrif á krónuna og verðbólgu Þótt erlendir ferðamenn hafi eytt nokkuð meira hér á landi í júlí en í fyrra, varð greiðslukortajöfnuðurinn, munurinn á því sem ferðamenn eyða hér og Íslendingar eyða erlendis, tæpum milljarði minni en á sama tíma í fyrra. Minni afgangur skýrist fyrst og fremst af þessari miklu aukningu á eyðslu Íslendinga erlendis. Þótt aukin neysla erlendis dragi úr verðbólguþrýstingi innanlands getur hún til lengri tíma litið veikt gengi krónunnar, en gengið hefur þó haldist sterkt fram að þessu.

Share this article