Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkaði um 0,37% í viðskiptum dagsins á aðalmarkaði. Þrettán félög lækkuðu, tíu hækkuðu og fjögur stóðu í stað. Mest lækkaði gengi Alvotech, um 6%, eftir miklar hækkanir undanfarið og stendur það í 592 krónum á hlut. Gengi félagsins hækkaði um 16,3% á mánudag eftir að Bank of America birti verðmat þar sem félagið var metið á 7 bandaríkjadali á hlut. Gengi Nova lækkaði um 4,8% eftir að félagið birti uppgjör fyrir annan ársfjórðung eftir lokun markaða í gær. Í uppgjörinu kom fram að hagnaður hafi dregist saman um 77% milli ára þó að tekjur hafi aukist á sama tíma. Jafnframt færði greiningarfyrirtækið Akkur afkomuspá sína fyrir félagið niður um 36%. Sjá einnig Akkur lækkar afkomuspá Nova um 36% Gengi JBT Marel og Beru hækkaði um 2,1% og gengi Iceland Seafood um 1,4%. Önnur félög hækkuðu um innan við 1 prósentustig. Mesta veltan var með bréf Íslandsbanka, 330 milljónir króna, Símans, 267 milljónir króna, og Haga, 212 milljónir króna. Heildarvelta viðskipta dagsins nam 1,6 milljörðum króna.