Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jokic bíður – En af hverju er Ísland að keppa æfingaleik?

Read Full Article →

Fram undan eru þrír leikir hjá íslenska karlalandsliðinu í körfubolta. Liðið leikur mikilvæga leiki í seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins. Þar bíða stórlið Tyrklands og Serbíu. Fyrst mun Ísland mæta Finnum í æfingaleik. Hvers vegna? Craig Pedersen segir ástæðuna fyrst og fremst liggja í því að Ísland hefur átt það til að spila fyrst lakan leik, ranka svo við sér og eiga frábæran seinni leik í síðustu gluggum. Finnlandsleikurinn á að sporna við því. Þá ræddi hann einnig tilhugsunina að mæta Serbanum Nikola Jokic, einum besta leikmanni í heimi. Viðtalið við Craig: Landsliðsþjálfarinn í körfubolta, Craig Pedersen, ræddi landsleikina þrjá í ágúst. Ísland mætir sterkum liðum Tyrklands og Serbíu. Ljóst er að stórstjarnan Jokic verður með Serbíu. En fyrst leikur Ísland sjaldgæfan æfingaleik. Af hverju? Hvers vegna leikum við æfingaleik núna? Craig útskýrði hugsunarháttinn bak við æfingaleikinn, sem er á föstudaginn í Helsinki í Finnlandi. „Okkur líður eins og við höfum alltaf leikið betur í seinni leiknum í síðustu gluggum. Þannig það að við höfum fundið lið til að spila æfingaleik við gæti hjálpað okkur. Það hefur verið erfitt að ná æfingaleikjum vegna vandamála með ferðalög. Lið hafa sérstaklega ekki viljað koma hingað til Íslands vegna skipulagsmála. Leikurinn er hugsaður til að skerpa á okkur og láta leikmenn mæta öðrum en þeim sem þeir mæta á æfingum. Það gerist áður en við spilum hina svokölluðu „raunverulegu“ leiki, eða þá sem telja í undankeppninni.“ Hafa komist hraðar inn í hlutina Craig segir það jákvætt hve stutt er liðið frá síðasta glugga, þegar Ísland tryggði sig inn í seinni hluta undankeppni HM. Þrjú efstu liðin í sex liða riðli fara áfram á HM. Auk Tyrklands og Serbíu mætir Ísland Bosníu og Hersegóvínu heima og heiman. „Ástandið á liðinu er mjög gott. Við finnum fyrir því að það er mjög stutt síðan síðasti gluggi var. Þannig að við höfum náð að komast aftur inn í hlutina miklu fyrr heldur en í fyrri gluggum. Leikmennirnir hafa verið að leika vel með liðum sínum og hafa staðið sig vel saman í landsliðinu. Þannig að hingað til hefur allt saman verið gott.“ Þórir missir af Serbíuleiknum Nær allir leikmenn eru klárir í slaginn en Þórir Guðmundur Þorbjarnarson missir af Serbíuleiknum. Þá eru Ægir Þór Steinarsson og Haukur Helgi Pálsson enn frá vegna meiðsla. „Þórir mun ekki ná Serbíuleiknum en hann getur spilað heimaleikinn gegn Tyrkjum. Aðrir í liðinu eru í góðu standi. Ægir er ekki alveg orðinn leikhæfur enn þá og Haukur er enn þá frá vegna bakmeiðsla. Annars hafa allir sýnt góða frammistöðu sem eru hér.“ Tvö af bestu liðum heims Ísland mætir svo Serbíu ytra 28. ágúst og Tyrklandi heima 31. ágúst. Hvað er planið gegn þessum liðum? „Að ná að framkvæma plön okkar og að finna flæði í leikjunum. Þetta eru tvö af bestu liðum í heimi, ekki bara í Evrópu. Þetta er risaáskorun en þetta getur líka hjálpað okkur síðar. Við leikum aftur í nóvember og svo í febrúar en þessir leikir gætu hjálpað okkur í næstu undankeppni EuroBasket.“ Ljóst er að stórstjarnan Nikola Jokic verður með. Hann er leikmaður Denver Nuggets í NBA deildinni og einn besti leikmaður heims. Jokic er illviðráðanlegur í serbnesku treyjunni. Hvernig líst Craig á að mæta honum? „Þeir verða með Jokic og hann er búinn að vera einn besti leikmaður í heimi. Það verður risaáskorun en það er líka heiður að leika gegn andstæðingum sem eru á svona háu getustigi,“ sagði hann að lokum.

Share this article