Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Íslendingar takast á við Jokic

Read Full Article →

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta sækir Serba heim til Belgrad klukkan 18:00 í kvöld í undankeppni HM í körfubolta. Leikurinn er sá fyrsti á öðru stigi undankeppninnar. Serbar hafa á að skipa einu besta körfuboltalandsliði heims og hafa innan sinna raða stórstjörnuna Nikola Jokic leikmann Denver Nuggets í NBA deildinni Jokic hefur þrisvar verið valinn mikilvægasti leikmaður NBA deildarinnar og var í lykilhlutverki þegar Denver varð NBA meistari árið 2023. Þar var Jokic valinn mikilvægasti leikmaður úrslitaeinvígisins. Þá var Jokic með Serbum þegar þeir unnu silfur á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016 og brons í París árið 2024. Það verður því fróðlegt að sjá leikmenn Íslands reyna sig gegn Jokic og félögum í kvöld. Bein útsending hefst með Stofunni á RÚV 2 klukkan 17:35 og flautað verður svo til leiks í Belgrad klukkan 18:00.

Share this article