Þegar allir 24 flokkarnir í Tekjublaði Frjálsrar verslunar eru skoðaðir kemur í ljós að mesta hækkun milli ára var hjá sjómönnum. Meðaltekjur 200 tekjuhæstu sjómanna landsins fóru úr tæplega 2,3 milljónum á mánuði í rúmlega 2,85 milljónir, sem er 26% hækkun. Þar með eru meðaltekjur sjómanna orðnar sambærilegar við læknahópinn, sem hækkaði um 8,3% milli ára og hærri en hjá starfsmönnum fjármálafyrirtækja í efsta lagi listans. Meðaltekjur 200 tekjuhæstu læknanna voru 2,86 milljónir og meðaltekjur starfsmanna fjármálafyrirtækja voru 2,84 milljónir króna. Forstjórar í einkageiranum eru að meðaltali með hæstu tekjurnar af þeim þeim 24 flokkum sem tilgreindir eru í Tekjublaðinu. Meðaltekjur 200 tekjuhæstu forstjóranna voru tæplega 5,5 milljónir króna á mánuði á síðasta ári. Árið á undan voru 200 hæstu forstjórarnir með tæplega 5 milljónir króna á mánuði. Tekjur þessa hóps hafa því hækkað um tæplega 10% á milli ára. Næsttekjuhæsti hópurinn eru næstráðendur í atvinnulífinu en þeir 200 hæstu í þeim flokki voru að meðaltali með 3,5 milljónir króna á mánuði. Athygli vekur að tekjur 200 hæstu í þeim hópi lækkuðum um 1,7% milli ára. Áhrifavaldar tekjulægsti hópurinn Eins og áður sagði hækkuðu sjómenn mest en áhrifavaldar hækkuðu næstmest, eða um 23%. Meðaltekjur 62 tekjuhæstu áhrifavaldanna námu 732 þúsund krónum á mánuði á síðasta ári sem þýðir að áhrifavaldar eru tekjulægsti hópurinn af 24 í Tekjublaðinu. Íþróttafólk hækkaði um tæp 16% milli ára, auglýsingafólk um 13% og hjúkrunarfræðingar um 10,1%. Meðal annarra hópa sem hækkuðu töluvert eru prestar sem hækkuðu um 9,0% milli ára, sveitarstjórnarmenn hækkuðu um 7,5%, flugmenn um 7,3% og verkfræðingar um 7,0%. Skólamenn hækkuðu um 6,3%, lögfræðingar um 6,0% og fasteignasalar um 5,5%. Meðaltekjur forseta, alþingismanna og ráðherra hækkuðu um 6,1% og enduðu í tæplega 1,7 milljónum króna á mánuði. Aðgerðarsinnar, sem er nýlegur listi og sá fámennasti með 34 nöfnum, hækkuðu um 7,6% að meðaltali og eru meðaltekjurnar 815 þúsund krónur. Þrír hópar lækkuðu milli ára. Eins og áður sagði drógust tekjur næstráðenda í atvinnulífinu saman um 1,7% og hjá hagsmunasamtökum og aðilum vinnumarkaðarins um 1,3%. Mesta lækkunin, 6,3%, mælist hjá hópnum „ýmsir úr atvinnulífinu“ en sá samdráttur skýrist að stórum hluta af einum einstaklingi. Sé Davíð Helgason, stofnandi Unity, tekinn út úr þeim lista er meðaltalslækkun hópsins 0,6%. Davíð var með 8,8 milljónir í mánaðartekjur á síðasta ári en 33 milljónir árið á undan. Mikilvægt er að árétta að í Tekjublaði Frjálsrar verslunar er greint frá útsvarsskyldum tekjum og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .