Tekjuhæstu 33 einstaklingarnir á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir endurskoðendur voru með yfir 2 milljónir króna í tekjur á mánuði í fyrra miðað við greitt útsvar. Samúel Orri Samúelsson, sem starfar sem „Director of Group Solidation“ hjá Alvotech, trónir á toppi listans þriðja árið í röð. Hann var með 4,5 milljónir króna í tekjur á mánuði í fyrra, samanborið við 5,6 milljónir árið áður. Sigurður Sigurgeirsson hjá Landsbankanum er næst tekjuhæstur á listanum en hann var með 3,8 milljónir króna á mánuði í fyrra. Jón Rafn Ragnarsson, fjármálastjóri Samherja, er í þriðja sæti á listanum. Hann var með tæpar 3,5 milljónir króna í tekjur í fyrra. Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér og fá það heimsent. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins. Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2025 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.