Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.8.2026 | 11:37 Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Allir tiltækir vagnar Strætó taka þátt í að koma fólki heim á leið í lok Menningarnætur. Ljósmynd/Aðsend Setja bókamerki Akstur Strætó verður með mjög breyttu sniði á laugardag vegna Menningarnætur sem er jafnan með annasömustu dögum ársins. Aukin tíðni verður á flestum leiðum allan daginn og ókeypis skutlur aka milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju auk þess sem breytingar verða á leiðum vegna lokana. Að því er segir í tilkynningu frá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins er viðamesta verkefnið þó við lok Menningarnætur þegar öllum tiltækum vögnum verður beint að Sólfarinu við Sæbraut þar sem þeir taka þátt í að flytja þúsundir gesta heim á leið eftir að hátíðarhöldum lýkur. Þá verður ferðum Strætó fjölgað talsvert allan daginn vegna þess mikla fjölda fólks sem heimsækir miðborgina frá því að Reykjavíkurmaraþon hefst á laugardagsmorgun þar til Menningarnótt lýkur með flugeldasýningu síðar um kvöldið. Frétt af mbl.is Stærsta Menningarnótt til þessa Leiðakerfið með talsvert breyttu sniði „Ókeypis skutlur aka á vegum Reykjavíkurborgar og Strætó milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju frá klukkan 7 til klukkan 23:15. Nýjung í ár er að skutlurnar koma einnig við á Njarðargötu frá kl. 7-12:00, sem sérstaklega er ætlað að gera fólki kleift að nota skutluna til að fylgjast með Reykjavíkurmaraþoninu. Fólk á bíl er sérstaklega hvatt til þess að leggja í grennd við Laugardalshöll og nýta skutluþjónustuna. Leiðakerfið verður með talsvert breyttu sniði vegna takmarkana á umferð í miðborginni. Biðstöðvar á Lækjartorgi verða m.a. óvirkar en endastöð verður á BSÍ yfir daginn og á Skúlagötu eftir kl. 15:00. Upplýsingar um akstur Strætó á Menningarnótt má finna í biðskýlum Strætó á degi Menningarnætur og á Strætó.is. Klukkan 21:30 hætta allar almennar leiðir akstri og öllum vagnaflota Strætó verður ekið að Sólfarinu við Sæbraut þar sem hann fær það verkefni að skila gestum Menningarnætur til síns heima. Frá klukkan 22:00 til 23:00 verður vögnum ekið í öll hverfi á höfuðborgarsvæðinu endurgjaldslaust. Allir tiltækir vagnar taka þátt í tæmingunni en gera má ráð fyrir að þeir séu um 70-80 talsins. Áætlunarferðir á leiðum 50 til Akraness, 51 til Selfoss og 55 til Keflavíkur fara einnig frá biðstöðinni á Skúlagötu kl. 22:40 skv. gjaldskrá,“ segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Fagna því að Menningarnótt ljúki fyrr Má búast við miklum umferðartöfum Segir þar enn fremur að eftir klukkan 23 taki breyttur akstur við, með þeim takmörkunum sem eiga við yfir daginn. Næturstrætó hefji svo akstur klukkan 1:20. Mikill fjöldi gesta Menningarnætur velur Strætó ár hvert til að heimsækja miðborgina enda má búast við miklum umferðartöfum vegna mannfjölda og lokana á laugardag. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Rekinn frá Stjörnunni eftir tæpar tíu vikur í starfi Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína Banvæna marglyttu rak á land á Spáni Umræðan Varnir Íslands eru traustar Frelsi til að sækja fram Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Búið að losa bílinn frá tengivagninum Væta í kortunum Tilfinningin „algjörlega dásamleg“ Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Hafnarstræti undir glerhimin Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum Nýjast á mbl.is » Watson-samtökin krefja ráðherra um úttekt Allir tiltækir vagnar munu flytja þúsundir Rekinn frá Stjörnunni eftir tæpar tíu vikur í starfi Aðild að ESB – mikil tækifæri glatast í viðskiptum við Kína Banvæna marglyttu rak á land á Spáni Umræðan Varnir Íslands eru traustar Frelsi til að sækja fram Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja umsamin ákvæði óáreiðanleg Kristrún skipt um skoðun „Ég hef aðeins áhyggjur af því“ Atburðir í móðu: „Hann átti bara að fara á spítala“ Mest lesið Í gær Í vikunni Danska konan fær 225 milljónir Ráðast í átak gegn veikindafjarvistum Hilmar Veigar: Það trúir enginn á Evrópu Halldóra tekjuhæst sveitastjórnarmanna Nýtt torg verður á Stjórnarráðsreit Verða áfram í sölu Eldur á iðnaðarsvæði í Hellnahverfi Hafnarstræti undir glerhimin Óróapúlsar undir Mýrdalsjökli Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Játaði skýlaust sök: „Mér þykir þetta leitt“ Fjarlægja nef Guðmundar Felix á morgun Stal ógrynni af kjúklingabringum Bankinn breytti reglunun Hlekktist á í lendingu: Reykjavíkurflugvöllur lokaður Flutningabíll valt á hliðina Myndskeið: Olía lekur frá flutningabílnum Tekjuhæsta „flugfólkið“ á landinu Átta læknar með yfir fimm milljónir Fór í hjartastopp í kjölfar hitakrampa Inga Sæland minnkar við sig Fjórir kærðir fyrir að mynda veltuna Einn handtekinn á leið frá Látrabjargi Vilja láta lækka skyldusparnaðinn Ásgeir: „Þeir eru hér gerendur í málinu“ Vildi áður taka upp evru en hefur snúist hugur Hvetur Íslendinga til að hafna viðræðum

Share this article