Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ásar með 16 milljarða ónotaða lána­línu

Read Full Article →

Ásar, nýtt móðurfélag Símans, hefur tryggt sér 31 milljarðs króna banka­fjár­mögnun hjá Lands­bankanum til fimm ára. Af þeirri fjár­hæð hafði félagið dregið 15 milljarða króna í júlí til að greiða upp eldri lán, en 16 milljarðar eru enn ónýttir. Síminn segir fjár­mögnunina sér­stak­lega sniðna að frekari vexti sam­stæðunnar. Af heildar­fjár­mögnuninni eru 25 milljarðar í langtíma- og fjár­festingar­lánum og sex milljarðar í fjár­festingar- og rekstrar­lána­línum. Þar af eru tveir milljarðar ætlaðir rekstrar­fjár­mögnun. „Í júlí voru öll bankalán sam­stæðunnar endur­fjár­mögnuð af Lands­bankanum til næstu fimm ára. Um leið tryggðum við okkur að­gang að frekara fjár­magni til vaxtar,“ segir María Björk Einars­dóttir, for­stjóri Símans. Hún segir nýju fjár­mögnunina veita félaginu aukinn sveigjan­leika á vaxtar­skeiði næstu ára. Fjár­mögnunin kemur á sama tíma og Ásar standa í um­fangs­mikilli upp­byggingu og hafa þegar ráðist í eða boðað nokkur stór fyrir­tækja­kaup. Stærstu fyrir­huguðu kaupin eru á Opnum kerfum og Öryggis­miðstöð Ís­lands. Saman­lagt fyrir­tækja­virði félaganna tveggja var ákveðið 13,75 milljarðar króna, auk um eins milljarðs króna í leigu­skuld­bindingum. Um 6,1 milljarður króna af kaup­verðinu verður greiddur með hlutum í Símanum en af­gangurinn með láns­fé og hand­bæru fé. Kaupin eru háð samþykki Sam­keppnis­eftir­litsins. Síminn hefur jafn­framt samið við Sýn um helstu skilmála mögu­legra kaupa á vef- og út­varps­miðlum félagsins. Þar er gert ráð fyrir fyrir­tækja­virði upp á 5,25 milljarða króna og um þriggja milljarða króna árs­tekjum. Endan­legur kaup­samningur liggur ekki fyrir og við­skiptin eru meðal annars háð áreiðan­leikakönnun og samþykki eftir­lit­saðila. Greiðslumiðlun Ís­lands varð síðan hluti af sam­stæðunni 1. júlí. Síminn greiddi 2,8 milljarða króna fyrir félagið í reiðufé að teknu til­liti til stöðu veltu­fjár­muna, lána­safns Pei og hreinna vaxta­berandi skulda við af­hendingu. Nýja lána­línan gefur Ásum því tals­vert svigrúm til frekari fjár­festinga án þess að þurfa að sækja sér­staka fjár­mögnun fyrir hvert ein­stakt verk­efni. Vaxta­berandi skuldir Símans, að leigu­skuld­bindingum meðtöldum, námu 20,8 milljörðum króna í lok júní. Hand­bært fé var rúmir tveir milljarðar og bók­fært virði útlána­safns Símans Pay um 4,2 milljarðar. Hreinar vaxta­berandi skuldir námu 14,5 milljörðum króna sam­kvæmt út­reikningi félagsins, eða 2,1-faldri EBITDA síðustu tólf mánaða. Þeir 16 milljarðar sem standa eftir af lána­línunni teljast ekki til skulda fyrr en dregið er á heimildina. Fjár­mögnunin styrkir því fyrst og fremst svigrúm Ása til frekari vaxtar, en skuld­setningin mun aukast eftir því sem lána­línan verður nýtt. Sjá einnig Hagnaður Símans helmingast en af­komu­spá hækkuð

Share this article