Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fyrir­tækjasölur skila milljörðum

Read Full Article →

Alls voru 250 Íslendingar með meira en 150 milljónir í fjármagnstekjur í fyrra. Saman­lagðar fjármagnstekjur þeirra 150 tekjuhæstu námu 73,2 milljörðum króna, samanborið við 80 milljarða árið 2024, 67 milljarða árið 2023 og 69 milljarða árið 2022. Eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá var Daníel Sigurðsson skattakóngur ársins 2025, en hann greiddi 942 milljónir króna í fjármagnstekjuskatt og námu fjármagnstekjur hans því tæplega 4,3 ­milljörðum króna. Á árinu seldi Daníel 70% hlut í DS Lausnum, fyrirtæki sem hann stofnaði og byggði upp frá grunni, til Fagkaupa. IKEA-bræðurnir Sigurður Gísli og Jón Pálmasynir voru aftur meðal tíu tekjuhæstu eftir að þeir seldu rekstur IKEA í Eystrasaltsríkjunum til Inter IKEA Group í lok árs 2024. Samhliða seldi Sigurður Gísli sinn hlut í IKEA á Íslandi til Jóns, sem er í dag eini eigandi IKEA á Íslandi. ­Sigurður Gísli var næsttekjuhæstur með tæplega 3,2 milljarða í fjármagnstekjur og Jón var í áttunda sæti með tæplega 1,3 milljarða. Jóhannes R. Jóhannesson, sem var framkvæmdastjóri IKEA í Eystrasaltsríkjunum og átti sömu­leiðis hlut í rekstrinum fyrir söluna, var sá þriðji tekjuhæsti með tæplega 1,8 milljarða í fjármagnstekjur. Fleiri nutu þá góðs af fyrirtækjasölum. Má þar meðal annars nefna Guðjón Rúnarsson sem var með tæplega 1,5 milljarða eftir að hafa selt þriðjungshlut í Kjarnavörum til Ölgerðarinnar, Jens Pétur Jensen sem var með 1,3 milljarða í fjármagnstekjur eftir að hafa selt 30% hlut í Internet á Íslandi og Eymar Einarsson sem var með 1,1 milljarð eftir að hafa selt útgerð sína til Loðnuvinnslunnar. Þá má nefna Báru Höskuldsdóttur og Ólaf Sigurðsson sem voru með 820 milljónir og 478 milljónir eftir að hafa selt hluti í útgerðarfélaginu Sólrúnu, Benedikt Stefánsson sem var með 713 milljónir eftir að hafa selt hlut í Plastco til Samhentra, Vilhjálmur Þorláksson sem var með 536 milljónir eftir að hafa selt 20% hlut í Gæðabakstri til Ölgerðarinnar, Frosta Bergsson sem var með 506 milljónir eftir að hafa selt hlut í dótturfélögum Vekru, þar á meðal Bílaumboðinu Öskju, til Inchcape og Erik Jensen sem var með 470 milljónir eftir að hafa selt B. Jensen til Kjarnafæðis Norðlenska. Skattadrottning ársins var Aðalheiður S. Gunnarsdóttir, sem situr í fimmta sæti með 1,4 milljarða í fjármagnstekjur, en hún á 30% hlut í fjölskyldufyrirtækinu J.S. Gunnarsson. Aðeins fjórar konur voru meðal 20 tekjuhæstu í fyrra og af þeim 150 tekjuhæstu voru aðeins 32 konur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.

Share this article