Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vestmannaeyingar meðal tekjuhæstu

Read Full Article →

Fjölskyldumeðlimir skattakóngsins 2023 sem áttu útgerðarfyrirtækið ÓS og Leo Seafood í Vestmannaeyjum eru meðal þeirra sem eru á listanum yfir þá 150 Íslendinga sem voru með mestu fjármagnstekjurnar í fyrra en þau eiga í dag hlut í fiskeldisfyrirtækinu Laxey. Gylfi og Viðar Sigurjónssynir og Daði Pálsson, forstjóri Laxeyjar og maki Þóru Hrannar Sigurjónsdóttur, voru með í kringum 470 milljónir króna hver. Börn Daða og Þóru, Sunna og Óliver, voru einnig með háar fjármagnstekjur þó þau nái ekki inn á listann en þau voru hvor um sig með í kringum 150 milljónir. Sjá einnig Eyjamaður skattakóngurinn Hluthafar í Ísfélaginu rata sömuleiðis reglulega á lista yfir tekjuhæstu Íslendingana. Haraldur Marteinsson var til að mynda með 342 milljónir í fjármagnstekjur á meðan bræðurnir Kristinn, Sigurður, Magnús og Einar Sigurðssynir voru með um og yfir 300 milljónir hver. Móðir þeirra, Guðbjörg M. Matthíasdóttir, rétt svo missir af sæti á listanum yfir 150 tekjuhæstu með 205 milljónir. Fleiri einstaklingar sem tengjast sjávarútvegi eru einnig á listanum, til að mynda fyrrverandi meðeigendur útgerðarinnar Sólrúnar ehf. Bára Höskuldsdóttir sem átti 16% hlut í árslok 2024 var með 820 milljónir í fjármagnstekjur og Ólafur Sigurðsson sem átti 22% hlut var með 478 milljónir. Fjallað var um tekjuhæstu Íslendingana í Viðskiptablaðinu . Hér má finna lista yfir þá 150 Íslendinga sem höfðu mestar fjármagnstekjur árið 2025. Listinn byggir á útreikningi samkvæmt álagningarskrá ríkisskattstjóra. Um er að ræða skattskyldar fjármagnstekjur, þ.e. vaxta- og leigutekjur, arðgreiðslur, söluhagnað og eftir atvikum höfundarréttargreiðslur.

Share this article