Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnum í æfingaleik á morgun. Lykilmaðurinn Martin Hermannsson viðurkennir að liðsmenn gætu verið í betra formi. Ísland mætir Finnlandi í æfingaleik ytra klukkan fimm á föstudaginn. Fram undan eru svo mikilvægir leikir gegn Tyrkjum og Serbum í seinni hluta undankeppni heimsmeistaramótsins. Æfingaleikur á þessum tímapunkti er nokkuð óvanalegur en Martin Hermannsson fagnar því. Martin telur að líkamlegt ásigkomulag mætti vera mun betra og er hreinskilinn með stöðuna. Viðtalið má sjá hér að neðan. Helga Margrét Höskuldsdóttir ræddi við hann. Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Finnum í æfingaleik á morgun. Lykilmaðurinn Martin Hermannsson viðurkennir að liðsmenn gætu verið í betra formi. Hreinskilinn með ástandið á sér og hópnum Martin var hreinskilinn með ástand sitt og liðsins. Hann á langt tímabil að baki þar sem hann varð Þýskalandsmeistari með liði sínu Alba Berlin. „Þetta er alltaf sama viðtalið. Alltaf gaman að koma og hitta strákana og góð stemning í hópnum og allt þetta. Auðvitað er þetta svolítið skrýtin tímasetning. Menn eru bara að byrja undirbúningstímabil. Þeir eru kannski ekki búnir að vera í mikilli leikæfingu síðustu vikur og mánuði. „Margir hverjir eru búnir að vera kannski aðeins of góðir við sig í sumarfríinu – og ég þar með talinn. Það er gott að koma saman, aðeins að dusta rykið af skónum. Að sjá hvar maður stendur.“ „Persónulega væri ég til í að vera kannski aðeins betur undirbúinn líkamlega. Þetta var strangt og langt tímabil hjá mér í fyrra þannig að maður reyndi að kúpla sig út og hlaða batteríin. Mér líður eins og batteríin séu hlaðin en nú þarf að koma sér aftur í leikform. Það er þá gott að fá þennan æfingaleik á móti Finnlandi fyrir stóru prófin sem fram undan eru.“ Hvernig horfir liðið á æfingaleikinn? Craig Pedersen þjálfari hafði áður haft orð á því að Ísland eigi það til að byrja landsliðsglugga með slæmum leik, en leika svo vel í þeim seinni. Æfingaleikurinn gegn Finnum á að koma í veg fyrir það. Martin telur það kýrskýrt hver markmiðin með æfingaleiknum séu. „Eina ástæðan er að koma sér í gang. Þetta er ekki til að æfa einhverja taktík eða eitthvað svoleiðis. Við erum búnir að vera það lengi saman. Við þekkjum hvorn annan það vel að það er ekkert nýtt í þessu. Þetta er aðallega til að hlaupa aðeins af sér hornin, sjá hvernig lungun og lappirnar eru, að fá að skjóta aðeins á körfuna.“ Síðan tekur alvaran við en þá mætir Ísland Serbíu ytra 28. ágúst og Tyrkjum heima 31. ágúst. Leikirnir í undankeppni verða sýndir á RÚV. Ekki sjálfsagður hlutur að mæta þeim bestu Ísland mætir Serbíu, Tyrklandi og Bosníu og Hersegóvínu í þessum seinni hluta undankeppni HM. Serbar og Tyrkir eru meðal sterkustu þjóða í heimi og Bosníumenn eru sterkir. Martin segir það forréttindi að hafa unnið sér inn þessa stöðu. Þetta er ekki staður sem íslenskt körfuboltalandslið er vant að vera á. „Við erum að fara í þennan leik til að vinna hann. Það er ekkert flóknara en það. Þetta eru ákveðin forréttindi. Þetta er staða sem við erum búnir að vinna lengi og hart að. Þetta er ekki sjálfsagður hlutur. Þetta er bara stærsta próf sem hægt er að taka. Að spila á móti Serbíu í Serbíu. Þeir eru með flesta af sínum bestu leikmönnum. Þetta verður mjög erfitt og í svona umhverfi eins og körfuboltaleikir í Serbíu eru þurfum við að vera heldur betur tilbúnir í verkefnið“ „Eins og ég segi, þetta er staður sem íslenskt körfuboltalandslið er ekki vant að vera á. Á þessu sviði, í gegnum söguna. Við erum búnir að vinna fyrir þessu. Við eigum þetta skilið. Það verður bara gaman að máta sig við þá bestu.“ Fer ekki fram á mikið fyrir þjóðina - vill fulla höll Martin vill fá fulla Laugardalshöll á heimaleikinn gegn Tyrkjum 31. ágúst. „Ég tala nú ekki um að fá þessa heimaleiki á móti þessum þjóðum. Ég fer ekki fram á mikið fyrir íslensku þjóðina — að bakka okkur upp og næla sér í miða áður en það er orðið of seint.“ Það eru allir að stefna að því sama. Auðvitað erum við ekkert saddir. Auðvitað erum við ánægðir að vera komnir hingað. Það var stærsta markmiðið. Núna er þetta löng leið en við erum að reyna að klifra upp fjallið.“ Rifjar upp tapið sára gegn Georgíu Ísland var grátlega nálægt því að komast á HM 2023. Ísland var einu stigi frá því að komast á mótið en þurfti fjögurra stiga sigur. Að lokum vann liðið 80-77 sigur. Lokaskot Íslands geigaði. Hins vegar gerðist næstum því hið ótrúlega en Georgíumenn settu næstum því niður flautukörfu af hinum enda vallarins. Það hefði tryggt framlengingu og þar með gefið Íslandi möguleika á að ná stigunum fjórum. Martin rifjaði þetta sára tap upp og vonar að Ísland nái þessum eina þrist sem vantar upp á. „Við vorum mjög nálægt því síðast. Það verður bara að koma í ljós núna hvort við séum með eina þriggja stiga körfu meira í vasanum til að koma okkur á stærstu keppni í heimi.“ Landsleikurinn gegn Finnum er klukkan 17:00 í dag. Þá leikur Ísland gegn Serbíu ytra 28. ágúst og Tyrkjum 31. ágúst hér heima í undankeppni HM. Leikirnir gegn Serbíu og Tyrkjum verða sýndir á RÚV, auk undankeppninnar allrar.