Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mikilvægt að vera trúr sjálfum sér í stórleiknum sem fram undan er

Read Full Article →

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir því serbneska í fyrsta leik sínum í annarri umferð undankeppni heimsmeistaramótsins. Serbneska liðið er stjörnum prýtt en íslenska liðið hlakkar til að takast á við stóru stjörnurnar. Martin Hermannsson, leikmaður liðsins, segist spenntur og að spennan í hópnum hafi stigmagnast eftir því sem nær líður leiknum. „Þetta verður ákveðin geðveiki hérna á morgun. Það verður gaman fyrir marga af þessum strákum sem hafa ekki spilað í þessum aðstæðum að koma hingað og njóta þess að vera hérna og spila á móti topp þremur leikmanni í heiminum.“ Hann segir vitanlega stóra áskorun fram undan en finnst mikilvægt að leikmenn njóti leiksins og hafi gaman af. Íslenska karlalandsliðið í körfubolta mætir Serbíu í fyrsta leik sínum í annarri umferð forkeppni HM 2027. Martin Hermannsson, leikmaður liðsins, segir mikilvægt að leikmenn verði trúir sjálfum sér í þessum stóra leik. Mikilvægt að vera maður sjálfur Martin er einn reynslumesti leikmaður liðsins og hefur spilað marga ansi stóra leiki, þar á meðal í leikjum þar sem bróðurpartur áhorfenda styður við andstæðinginn. Spurður að því hvaða skilaboðum hann miðlar til yngri og óreyndari leikmanna segir hann mikilvægast að þeir séu trúir sjálfum sér og þá sé mikilvægt að flækja verkefnið ekki. „Það er bara það að vera ekkert að breyta sjálfum sér. Þegar upp er staðið þá er þetta enn þá fimm á fimm, einn bolti, tvær körfur, þrír dómarar. Það þarf bara að njóta þess að vera í augnablikinu.“ Þá segir Martin að íslensku leikmennirnir þekki vel hvor inn á annan. „Við erum góðir í því að styðja við bakið á hvorum öðrum. Við bara sjáum það að ef einhver þarf hjálp þá pikkum við hann upp. Svo ef það þarf að kippa einhverjum niður þá erum við fljótir að því líka.“ Ísland hefur sýnt að það geti staðið í þeim bestu Serbía er í þriðja sæti á heimslistanum og því óhætt að segja að prófin gerist ekki mikið stærri. Ísland er í 44. sæti en liðið fer fullt sjálfstrausts inn í leikinn. Spurður hvort að hann telji að Serbarnir vanmeti Ísland segir Martin að íslenska liðið hafi unnið sér inn virðingu á undanförnum árum. „Úrslitin hafa sýnt það síðustu ár að við getum strítt ansi mörgum. Við höfum ekki bara verið að spila góða leiki heldur líka náð í úrslit á móti stærstu körfuboltaþjóðum í heimi.“ Leikur Íslands og Serbíu fer fram á morgun klukkan 18:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV 2. Stofan mun hita upp frá klukkan 17:35.

Share this article